Veðurstofan býður upp á nýja þjónustu
Veðurstofa Íslands gerir nú vefstjórum kleift að birta án fyrirhafnar veðurupplýsingar á vefjum sínum. Þannig geta vefstjórar birt þau veðurkort sem nýtast best notendum viðkomandi vefs.
Þjónustan er ókeypis. Hún byggir á „
iframe“
- tækninni. Í raun og veru birtist þá sérsniðin síða frá vedur.is inni í síðu viðkomandi vefs.
Útfærðir hafa verið tveir stórir iframe-rammar sem ætlað að vera meginefni heillar síðu. Fleiri iframe-rammar verða útfærðir ef margir óska eftir því.
Nokkrir vefir hafa undanfarið aðstoðað Veðurstofuna við prófanir á þessari þjónustu. Við kunnum þeim bestu þakkir fyrir:
- Hestafréttir - veðursíða
- Fjallaleiðsögumenn - ferðir á Hvannadalshnúk
- Kennarasambandið
- Búnaðarsamband Suðurlands - veðursíða
Þessi þjónusta er ekki síst ætluð héraðsfréttamiðlum, ferðaþjónustuvefjum og öðrum litlum og miðlungsstórum vefjum. Á þennan hátt geta vefir nú birt glöggar veðurupplýsingar án þess að þurfa vísa notendum af sínum vef. Skoða má nánari upplýsingar um iframe-þjónustuna.