Fréttir
aðalstöðvar ECMWF
Aðalstöðvar ECMWF í Reading, skammt vestur af London.

Ísland fullgildur aðili að Reiknimiðstöð evrópskra veðurstofa, ECMWF

Kynning í Þjóðmenningarhúsinu á starfsemi miðstöðvarinnar

7.3.2011

Ísland verður fullgildur aðili að ECMWF, Reiknimiðstöð evrópskra veðurstofa, eftir að hafa verið aukaaðili frá því seint á 8. áratug síðustu aldar.

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra og Dominique Marbouty, forstjóri ECMWF, munu undirrita formlegan samning þess efnis miðvikudaginn 9. mars.

Af þessu tilefni býður Veðurstofa Íslands til kynningar á starfsemi miðstöðvarinnar og mikilvægi hennar fyrir Ísland í Þjóðmenningarhúsinu, Bókasal, miðvikudaginn 9. mars frá kl. 09:30 til 12:00.

Allir eru velkomnir.

Veðurstofur flestra aðildarþjóða nota spár ECMWF í rekstri sínum, gjarnan með því að nota reikniniðurstöður líkana ECMWF sem innlagsgögn fyrir veðurspárlíkön með þéttu reiknineti.

Á Íslandi eru reikniniðurstöður ECMWF notaðar á þennan hátt (sem hluti af samstarfsverkefni Veðurstofu Íslands og Reiknistofu í Veðurfræði) og einnig eru þær notaðar víða í spákerfum Veðurstofunnar. Spár ECMWF eru t.d. grundvöllur fyrir veðurspár á Atlantshafi, fyrir flugþjónustu allt að norðurpólnum og margar textaspár sem Veðurstofan gefur út. Á vefnum vedur.is má víða sjá neðanmálstilkynningar um að gögnin byggist á útreikningum líkans frá ECMWF.

ECMWF rekur mjög öflugt gagnaver með ofurtölvum. Með fullri aðild Íslands að ECMWF mun Veðurstofan fá aðgengi að reikniafli stofnunarinnar sem mun væntalega skila sér í bættum veðurspám.

Nánar má lesa um sögu reiknimiðstöðvarinnar, hlutverk hennar og mikilvægi, í sérstakri grein.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica