Fréttir
Úrkomuspá fyrir aðfaranótt laugardagsins 31. ágúst 2013.

Frekari fréttir af væntanlegu illviðri

Ábending vegna væntanlegs norðan illviðris fös. 30. ágúst og lau 31. ágúst.

28.8.2013

Veðurstofunni 28. ágúst 2013 kl. 11:00

Hér fyrir neðan er uppfærð spá fyrir næstu daga. Enn er vakin sérstök athygli á mjög slæmri veðurspá í lok þessarar viku.

Á föstudag
Breytileg átt, víða 5-13 m/s og rigning. Gengur í norðvestan 18-23 NV-til með mikilli rigningu seinnipartinn, en snjókomu ofan 200-300 metra yfir sjávarmáli. Vestlægari og áfram rigning syðra, en mun hægari og úrkomulítið A-lands. Hiti 1 til 12 stig, svalast NV-til.

Á laugardag
Norðvestan 18-23 m/s og talsverð eða mikil rigning á Vestfjörðum og N-lands og slydda
í innsveitum, en snjókoma ofan 200-300 metra hæðar yfir sjó. Úrkomulítið SA-lands. Dregur úr vindi og úrkomu V-til seinnipartinn. Hiti 2 til 10 stig, kaldast í innsveitun N-lands og frystir allvíða þar um nóttina.

Á sunnudag
Gengur í suðaustanátt með rigningu S- og V-lands og hlýnar smám saman, en annars hægari breytileg átt, úrkomulítið og svalt.
- - -

 Þessi spá er unnin skv. nýjustu spá Reiknimiðstöðvar evrópskra veðurstofa (ECMWF) sem byggð er á greiningu 28. ág. kl. 00:00.

Dálitlar breytingar hafa orðið á spánni miðað við sams konar spár gærdagsins. Þessar eru helstar:

1. Helst er að vindstrengurinn hefur færst enn vestar. Hvassast verður á Vestfjörðum og eins er gert ráð fyrir hvassri NV-átt inn Breiðafjörð og Faxaflóa og síðan hvessir N- og NV-lands um nóttina. Hins vegar mun snjókoman og slyddan falla áfram á Vestfjörðum og á NV-landi. (Minni líkur eru á að slydda og snjókoma nái alla leið suður nema ef vera skyldi á fjallvegum SV- og V-lands).

2. NA-land sleppur ennþá sæmilega við versta veðrið þar sem áttin verður vestlægari og eins er útlit fyrir að úrkoman verði ekki eins mikil og á  NV-landi og Vestfjörðum.

Ofantalin atriði munu skýrast betur þegar nær dregur og geta enn þróast á báða vegu, enda ber spám ekki algerlega saman um hver þróunin verður og litlar breytingar geta valdið miklum breytingum eftir landshlutum.

Um er að ræða óveðurslægð sem spáð er að dýpki mjög hratt en óvissa í braut lægðarinnar veldur óvissu um það í hvaða landshluta veðrið verður verst. Ennþá er full ástæða fyrir íbúa á norðan- og vestanverðu landinu að vera við öllu búnir.

 Vakthafandi veðurfræðingar

Óli Þór Árnason og  Elín Björk Jónasdóttir

Sjá uppfærðar textaspár þegar nær dregur





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica