Greinar
hnötturinn skyggður að hálfu
Dagur og nótt, 23. september 2010.

Haustjafndægur 2010

Þórður Arason 22.9.2010

Jafndægur eru tvisvar á ári, um 20.-21. mars og 22.-23. september. Tímasetningin hnikast örlítið milli ára, eftir því hvernig stendur á hlaupári. Jafndægur miðast við að þá er sólin beint yfir miðbaug jarðar. Þessi atburður er á tilteknu augnabliki innan dagsins. Um haustjafndægur eru dagur og nótt álíka löng og styttist dagurinn um 6-7 mínútur á hverjum degi.

Stundum er sagt að á jafndægrum séu dagur og nótt jafnlöng, sem er nærri lagi, en þetta er ekki alveg svo einfalt. Í fyrsta lagi er bjart nokkru fyrir sólarupprás og eftir sólarlag, en jafnvel tíminn milli sólarupprásar og sólarlags er ekki nákvæmlega 12 klst. á jafndægrum.

Ástæða þessa fráviks er af tvennum toga. Í fyrsta lagi miðast sólarupprás og sólarlag ekki við augnablikið þegar sólmiðjuna ber við sjónbaug (láréttan sjóndeildarhring), heldur er miðað við fyrstu og síðustu geisla sólar, þ.e. efri rönd sólkringlunnar. Í öðru lagi veldur ljósbrot í lofthjúpi jarðar því að við getum séð í sólina þar til sólmiðjan er komin um 1,1° niður fyrir sjónbaug.

Í Almanaki Háskólans má t.d. sjá að tíminn milli sólarupprásar og sólarlags á haustjafndægrum er um 12 klst. og 13 mínútur, en tveimur dögum eftir jafndægur er dagurinn 12 klst.

Haustjafndægur 2010 eru 23. september kl. 03:09. Skoða má sólargang á Íslandi í dag hér á vefnum.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica