Greinar

Áhrif sjávarhita: hlýjast í Grímsey

Einar Sveinbjörnsson 30.11.2006

Hinn 24. október 2006 kl. 12 á hádegi var frost um nær allt Ísland. Aðeins á einum mælistað var hitinn hærri en frostmarkið, en það var í Grímsey á Skjálfandaflóa. Þar reyndist hitastigið vera 0,6°C samfara vindi sem var 10 m/s af norðaustri.

Í þessu tilviki var sjórinn fyrir norðan land enn það hlýr og varmagefandi að þrátt fyrir kaldan loftmassann úr norðri náði hann að hitna í neðstu lögum þegar loftið blés yfir sjóinn.

Svipað gerðist á Garðaskagavita þar sem hitinn var við frostmark.

Annars staðar voru útgeislunaráhrif landsins meiri og mældist því frost, mest í innsveitum og á hálendinu, meira að segja í Vestmannaeyjum þar sem hiti mældist -1,6 stig á hádegi.

Úr Grímsey.
Grímsey
Mynd 1. Veðurathugunarstöðin í Grímsey sumarið 1994. Ljósmynd: Elvar Ástráðsson.






Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica