Íslensk eldfjöll

Jarðskjálftar í janúar 2016

Ríflega 2500 jarðskjálftar voru staðsettir í janúar með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands. Flestir skjálftanna áttu upptök í Öxarfirði en þar mældust rúmlega 1400 skjálftar, sá stærsti var 3,7 að stærð og fannst hann við Kópasker, í Þistilfirði og í Reykjahverfi í Norðurþingi. Í Bárðarbunguöskjunni mældust sjö skjálftar yfir 3 að stærð og var sá stærsti 3,6 stig. Fremur rólegt var í Mýrdalsjökli.

Lesa meira

Landmælingastöðin á Kistu í Vatnajökli

Á jökulskerinu Kistu sem skagar út úr Bárðarbungu er GPS mælistöð. Reynt er að tryggja eftir fremsta megni rekstur stöðvarinnar á veturna.

Þessi stöð sýnir áberandi færslur út frá Bárðarbungu um þessar mundir.

Við eldfjallavöktun eins og á Vatnajökli geta aðgengi og aðstæður verið mjög erfiðar. Engin leið er að ferja búnað upp á jökulskerið þannig að öryggi starfsmanna sé tryggt án aðkomu Landhelgisgæslunnar.

Lesa meira

FUTUREVOLC verkefnið árangursríkt

Í vikunni verða haldnir hérlendis tveir viðamiklir fundir í FUTUREVOLC, sem er verkefni um eldfjallavá.

Að loknum ársfundi verður haldin kynningarfundur með hagsmunaaðilum svo sem almannavörnum, lögreglu, flugrekstraraðilum og stofnunum er sinna mengunarvöktun.

FUTUREVOLC hófst 2012. Samhent átak sá til þess að markmið verkefnisins náðust og náttúran sjálf lét ekki sitt eftir liggja. Á Íslandi urðu ný mælitæki til þess að nýliðnir náttúruatburðir eru svo vel skráðir að þess eru fá ef nokkur dæmi annarsstaðar í heiminum.

Lesa meira

Jarðskjálftar í júní 2015

Tæplega 2500 jarðskjálftar voru staðsettir með SIL jarðskjálftamælakerfi Veðurstofu Íslands. Mesta skjálftavirknin er líkt og undanfarna mánuði við Bárðarbungu og í ganginum undir Dyngjujökli. Tvær skjálftahrinur urðu á Reykjaneshrygg og þar urðu einnig tveir stærstu skjálftar mánaðarins 3,9 að stærð.


Lesa meira

Jarðskjálftar í maí 2015

Um 2200 jarðskjálftar voru staðsettir í maí með SIL jarðskjálftamælakerfi Veðurstofu Íslands. Mesti fjöldi skjálfta mælist enn með upptök í ganginum undir Dyngjujökli og við öskju Bárðarbungu. Mesta skjálftahrina sem mældist varð við Kleifarvatn í lok mánaðarins. Stærsti skjálftinn var um fjögur stig að stærð og varð hans víða vart.

Lesa meira

Jarðskjálftar í mars 2015

Rúmlega 2200 jarðskjálftar mældust með SIL mælakerfi Veðurstofu Íslands í mars, heldur fleiri en mánuðinn á undan. Skjálftum fækkaði við Bárðarbungu en fjölgaði í ganginum  milli mánaða. Stærsti skjálftinn var 3,5 að stærð og var hann á Reykjaneshrygg.

Lesa meira

Gufubólstrar úr Holuhrauni

Undanfarnar vikur hafa gufubólstrar sést stíga frá Holuhrauni en eldgosinu lauk 27. febrúar síðastliðinn og engin merki eru um að nýtt gos sé hafið. Vatnsflaumur á Flæðunum eykst aftur á móti mjög um þessar mundir. Vatnið kemst í snertingu við norðausturjaðar Holuhrauns og veldur þessari bólstramyndun. Gufubólstrar sjást einnig á gígasvæðinu en þar streymir að leysingavatn undan vestanverðum Dyngjujökli. Líklegt er að gufubólstrar sem þessir muni sjást áfram.

Lesa meira

Jarðskjálftar í apríl 2015

Í apríl mældust yfir 2000 jarðskjálftar með SIL skjálftamælakerfi Veðurstofu Íslands. Flestir skjálftar áttu upptök í ganginum sem myndaðist í umbrotunum við Bárðarbungu. Vel á sjöunda hundrað skjálftar mældust þar, en hægt dregur úr virkninni.

Lesa meira

Jarðskjálftar í febrúar 2015

Tæplega 2000 jarðskjálftar mældust með SIL mælakerfi Veðurstofunnar í febrúar, mun færri en mánuðinn á undan.  Skjálftum fækkaði frá janúar við Bárðarbungu, en  fjölgaði  í kvikuganginum. Stærsti skjálftinn var 4,9 við Bárðarbungu. Skjálftaröð varð í Öxarfirði.

Lesa meira
Jarðskjálftar á Íslandi í janúar 2015

Jarðskjálftar í janúar 2015

Tæplega 3100 jarðskjálftar mældust með SIL mælakerfi Veðurstofunnar í janúar þar af yfir 1600 við Bárðarbungu og rúmlega 400 í kvikuganginum. Stærsti skjálftinn var M5,1, við Bárðarbungu, og var það sá eini sem var yfir fimm stigum í mánuðinum. Undir lok mánaðarins varð jarðskjálfti sunnan Hafnarfjarðar sem fannst í nágrenninu.

Lesa meira

Jarðhræringar við Bárðarbungu 2015 - eftirmáli í mars, apríl og maí

Í þessari upplýsingagrein er birtur eftirmáli jarðhræringanna og eldsumbrotanna við Bárðarbungu; þ.e. niðurstöður athugana í mars og apríl 2015. Nýjustu upplýsingarnar eru efst. Með öðrum áþekkum greinum veitir hún yfirlit um framvindu mála.

Lesa meira

Ljósmyndir við goslok

Ljósmyndir við goslok: Hvorki glóð í gígum né á gossprungu 27. febrúar 2015.

Lesa meira

Jarðhræringar við Bárðarbungu 2015 - febrúarmánuður

Í þessari upplýsingagrein eru birtar niðurstöður um jarðhræringarnar og eldsumbrotin við Bárðarbungu í febrúar 2015. Nýjustu upplýsingarnar eru efst. Með öðrum áþekkum greinum veitir hún yfirlit um framvindu mála.

Lesa meira

Flugljósmyndir af Holuhrauni - fimm mánuðir

Ljósmyndirnar í þessari grein sýna þróun eldgossins í Holuhrauni en þær tók Ólafur Sigurjónsson. Bæði eru myndir teknar einni viku eftir upphaf eldsumbrotanna og myndir teknar fimm mánuðum síðar.

Lesa meira

Flug yfir Holuhraun 3. febrúar 2015

Flogið var yfir Holuraun 3. febrúar 2015. Hér fylgja nokkrar ljósmyndir með skýringum.

Lesa meira

Jarðhræringar við Bárðarbungu 2015 - janúarmánuður

Í þessari upplýsingagrein eru birtar niðurstöður um jarðhræringarnar og eldsumbrotin við Bárðarbungu í janúar 2015. Nýjustu upplýsingarnar eru efst. Með öðrum áþekkum greinum veitir hún yfirlit um framvindu mála.

Lesa meira

Jarðhræringar við Bárðarbungu 2014 - desembermánuður

Í þessari upplýsingagrein eru birtar niðurstöður um jarðhræringarnar og eldsumbrotin við Bárðarbungu í desember 2014. Nýjustu upplýsingarnar eru efst. Með öðrum áþekkum greinum veitir hún yfirlit um framvindu mála.

Lesa meira

Um GPS mælingar vegna umbrotanna 2014

Umbrotin við norðvestanverðan Vatnajökul hófust með jarðskjálftahrinu 16. ágúst 2014. Miklar jarðskorpuhreyfingar mældust á meðan berggangurinn var að myndast og þær sýndu vel framrás hans og samtímis landsig inn að miðju Bárðarbungu.

Lesa meira

Jarðhræringar við Bárðarbungu 2014 - nóvembermánuður

Í þessari upplýsingagrein eru birtar niðurstöður um jarðhræringarnar og eldsumbrotin við Bárðarbungu í nóvember 2014. Nýjustu upplýsingarnar eru efst. Með öðrum áþekkum greinum veitir hún yfirlit um framvindu mála.

Lesa meira

Jarðhræringar við Bárðarbungu 2014 - októbermánuður

Í þessari upplýsingagrein eru birtar niðurstöður um jarðhræringarnar og eldsumbrotin við Bárðarbungu í október 2014. Nýjustu upplýsingarnar eru efst. Með öðrum áþekkum greinum veitir hún yfirlit um framvindu mála.

Lesa meira

Eftirlitsflug yfir landið 28. október 2014

Flogið var með Landhelgisgæslunni, TF-SIF, um mest allt landið 28. október 2014. Elín Björk Jónasdóttir tók ljósmyndirnar sem fylgja þessari grein.

Lesa meira

Flug yfir NV-Vatnajökul 24. október 2014

Flogið var með ISAVIA yfir norðvestanverðan Vatnajökul 24. okt. 2014 að kanna sigdældir og gos. Matthew J. Roberts sendi ljósmyndirnar sem fylgja þessari grein.

Lesa meira

Flug yfir Bárðarbungu 10. október 2014

Flogið var yfir Bárðarbungu, föstudaginn 10. október 2014. Starfsmenn Veðurstofu tóku þessar myndir.

Lesa meira

Jarðhræringar við Bárðarbungu 2014 - septembermánuður

Í þessari upplýsingagrein eru birtar niðurstöður um jarðhræringarnar og eldsumbrotin við Bárðarbungu í september 2014. Nýjustu upplýsingarnar eru efst. Með öðrum áþekkum greinum veitir hún yfirlit um framvindu mála.

Lesa meira

Jarðhræringar við Bárðarbungu 2014 - ágústmánuður

Í þessari upplýsingagrein eru birtar niðurstöður um jarðhræringarnar og eldsumbrotin við Bárðarbungu 16. - 31. ágúst 2014. Nýjustu upplýsingarnar eru efst. Með öðrum áþekkum greinum veitir hún yfirlit um framvindu mála.

Lesa meira

Brennisteinsmengun frá eldgosi

Almenningur láti vita af brennisteinsfnyk og/eða öskufalli vegna eldsumbrotanna í Holuhrauni, norðan við Dyngjujökul, haustið 2014. Skráningarformið kynnt. ((ATH. þessi grein hefur heimatengingu undir Mengun en aukatengingu á fróðleik jarðhræringa þar sem hún var upphaflega gerð.))

Lesa meira

Hraunflæðilíkön eldgosa í Holuhrauni

Þrjár mismunandi líkankeyrslur af hraunflæði voru bornar saman við ratsjármynd sem tekin var í TF-SIF föstudaginn 29. ágúst 2014.

Lesa meira

Ljósmyndir úr vinnuferðum vegna Bárðarbungu

Í þessari grein eru ljósmyndir úr vinnuferðum sem farnar voru vegna jarðhræringanna á norðvestanverðum Vatnajökli. Meðal annars var farið með færanlega ratsjá að Hágöngum og mælitæki sett upp á Hamrinum nærri Bárðarbungu.

Lesa meira

Bárðarbunguskjálftarnir í þrívídd

Framsetning gagna er lykilatriði og ein gagnleg leið er að skoða mælingar í þrívídd. Í myndbandinu hefur staðsetning og dýpi jarðskjálftamiðja verið teiknuð upp fyrir landsvæðið undir Bárðarbungu og hreyfimynd útbúin. Sjónarhornið byrjar líkt og horft sé á hefðbundið kort en svo breytist það og sýnir hvað er að gerast undir yfirborðinu. Hæð og dýpi eru ýkt fimmfalt til þess að draga fram landslag á yfirborði og ná fram betri aðgreiningu á dýpi skjálftanna.

Lesa meira

Jarðhræringar við Bárðarbungu og eldgos í Holuhrauni

Hér er samantekt vefgreina sem tengjast jarðhræringunum við Bárðarbungu og eldgosinu í Holuhrauni, veturinn 2014 - 2015: Daglegar upplýsingar í átta mánuði ásamt fréttum og fróðleiksgreinum sem tengjast þessum náttúruváratburðum.

Lesa meira

Órói á jarðskjálftamælum vegna skriðunnar í Öskju

Skriðan sem féll úr austurbrún Öskju mánudagskvöldið 21. júlí 2014 kom fram sem sterk og óvenjuleg óróahviða á jarðskjálftamælum, jafnvel í mikilli fjarlægð frá upptökunum. Áþekk merki sjást stundum sem afleiðing af sterkum jarðskjálftum fjarri Íslandi en í þetta sinn höfðu alþjóðleg net jarðskjálftamæla ekki numið nokkuð slíkt.

Lesa meira

Jarðskjálftar á Íslandi 2012

Nú hefur verið gert yfirlit jarðskjálftavirkni á Íslandi árið 2012 (og yfirlit síðasta árs er væntanlegt). Um 16.300 jarðskjálftar mældust með jarðskjálftamælakerfi Veðurstofu Íslands árið 2012. Helstu atburðir voru jarðskjálftaraðir syðst í Eyjafjarðarál með tveimur skjálftum rétt yfir 5 að stærð. Austast á Reykjanesskaga urðu þrír skjálftar rétt yfir 4 að stærð suðaustan við Helgafell, við Bláfjöll og norðvestan við Geitafell.

Lesa meira
Mýrdalsjökull og Katla

GPS stöðin á Mýrdalsjökli

Veðurstofa Íslands rekur net símælandi GPS landmælingatækja víða um landið til að fylgjast með jarðskorpu-hreyfingum tengdum landreki, eldfjöllum og jarðskjálftum. Uppi á Mýrdalsjökli er ýmis tækjabúnaður sem sinna þarf reglulega. Hér eru birtar myndir úr vinnuferð.

Lesa meira
logo

Fréttatilkynning vegna dómanna í l'Aquila á Ítalíu

Alþjóðleg samtök um jarðskjálftafræði og innri gerð jarðar, IASPEI, hafa sent frá sér fréttatilkynningu vegna dómanna yfir jarðskjálftafræðingum í l'Aquila á Ítalíu. Evrópska jarðskjálftaráðið, ESC, hefur hvatt fulltrúa sína í þeim löndum sem eiga aðild að ráðinu til að koma fréttatilkynningunni á framfæri í sínu landi.

Lesa meira

Gasmælingar á Heklu

Í júlí 2012 var settur upp gasmælir á tindi Heklu sem nemur CO2, H2S, SO2 og H2 ásamt hitastigi, þrýstingi og raka. Þetta er í fyrsta skipti sem gasútstreymi er mælt með síritandi hætti á íslenskri eldstöð. Í haust komu upp vandkvæði vegna ísingar á vindrafstöðinni en verið er að finna lausnir á þessu. Gasstreymi frá eldstöðvum getur gefið vísbendingar um innri byggingu kvikukerfa og samspil þeirra við jarðhitakerfi. Breyting á gaslosun er oft merki um yfirvofandi breytingu í eldstöðinni, jafnvel upphaf goss.

Lesa meira

Jarðskjálftar á Íslandi 2011

Yfir 17.000 jarðskjálftar mældust með jarðskjálftamælakerfi Veðurstofu Íslands árið 2011. Helstu atburðir á árinu voru eldgos í Grímsvötnum, aukin virkni í Kötlu, skjálftahrinur við Húsmúla og skjálftahrinur á Krýsuvíkursvæðinu. Sex jarðskjálftar mældust með stærðir um og yfir Ml 4, einn norður af Grímsfjalli í janúar, tveir við Kleifarvatn í febrúar, einn í Kötluöskju í október og tveir við Húsmúla í október.

Lesa meira
Á Guðabungu

Könnun á viðhorfum fólks til eldgosahættu

Nú stendur yfir evrópsk könnun á viðhorfum fólks til eldgosahættu. Markmiðið er að auka skilning á félagslegum og efnislegum afleiðingum eldgosa svo hægt sé að minnka þau óþægindi sem mannlegt samfélag verður fyrir. Vonast er eftir góðum undirtektum, ekki síst frá því fólki sem upplifði áhrif eldgosanna á Íslandi nýliðin vor.

Lesa meira

Samantekt á efni um gosið í Grímsvötnum 2011

Í þessari grein er yfirlit yfir þær vefsíður sem tengjast eldgosinu í Grímsvötnum 2011.

Lesa meira

Gos í Grímsvötnum

Í þessari grein eru birtar sameiginlegar stöðuskýrslur Jarðvísindastofnunar Háskólans og Veðurstofu Íslands um eldgosið í Grímsvötnum sem hófst að kvöldi 21. maí 2011. Einnig helstu aðrar upplýsingar og stöku ljósmyndir.

Lesa meira
gosmökkur

Ljósmyndir frá Grímsvatnagosi 2011

Gos hófst í Grímsvötnum í Vatnajökli laugardagskvöldið 21. maí 2011. Hér er að finna ljósmyndir bæði af kröftugu upphafi gossins, af dvínandi mekki nokkrum dögum síðar og af umhverfinu eftir gos.

Lesa meira

Eldgosavöktun og eldgosarannsóknir

Afmælisfundur Veðurstofu Íslands var haldinn hinn 14. desember 2010. Þar voru meðal annars flutt fimm erindi um eldgosavöktun og eldgosarannsóknir. Hér á eftir fer samantekt Sveinbjörns Björnssonar á þeim erindum. Lesa meira
sólarlag við Keili

Fundir um áhrif eldgossins

Um miðjan september 2010 voru haldnir þrír alþjóðlegir fundir á Íslandi um áhrif eldgossins í Eyjafjallajökli. Keilisráðstefnan var fjölsóttust.

Lesa meira

Eldsumbrot í Eyjafjallajökli

Hér er ný grein þar sem fá má upplýsingar um eldgosið í Eyjafjallajökli, nánar tiltekið þau eldsumbrot sem nú virðast vera að bresta á í suðvestanverðum jöklinum. Upplýsingarnar verða uppfærðar eins fljótt og auðið er þegar einhverjar breytingar verða. Í greininni verða ljósmyndir, línurit og tenglar á ratsjármyndir; ásamt margvíslegum tenglum á skylt efni.

Lesa meira

Jökulíshlaup við Gígjökul

Jökulíshlaup, að mestu ískurl og hjarn sem er blandað gjósku, sandi og urð, er að finna utan við Gígjökul síðan á öðrum degi eldgossins í Eyjafjallajökli. Neðan við tunguna er stórt bjarg sem borist hefur með henni og ofan á henni fjölmörg minni. í þessari grein er að finna ljósmyndir úr könnunarleiðangri frá 23. maí 2010. Lesa meira

Algengustu spurningar varðandi gosið í Eyjafjallajökli

Algengustu spurningar varðandi gosið í Eyjafjallajökli.

Lesa meira

Eftirlitsflug Landhelgisgæslunnar

Landhelgisgæslan vaktar eldgosið í Eyjafjallajökli úr lofti. Lesa meira

Flogið yfir Eyjafjallajökul

Ólafur Sigurjónsson hefur flogið yfir Eyjafjallajökul frá upphafi goss og tekið ljósmyndir.

Lesa meira
Eyjafjallajökull

Jarðfræði Eyjafjallajökuls og jökulhlaupið úr Gígjökli 1822

Þegar gaus í Eyjafjallajökli á nítjándu öld, 1821-1823, fylgdu gosinu nokkur jökulhlaup, aðallega úr Gígjökli, og var eitt þeirra langstærst; fyllti það hlaup alla gömlu farvegi Markarfljóts. Dreifing þess var kortlögð árið 2005. Hlaupið var svo stórt að núverandi varnargarðar myndu líklegast ekki ná að halda slíku í skefjum.

Lesa meira

Eldgosið á Fimmvörðuhálsi

Í þessari grein má fá upplýsingar um eldgosið í Eyjafjallajökli, nánar tiltekið eldsumbrotin á Fimmvörðuhálsi. Upplýsingarnar eru uppfærðar eins fljótt og auðið er þegar einhverjar breytingar verða. Í greininni eru ljósmyndir, línurit og tenglar á ratsjármyndir; ásamt margvíslegum tenglum á skylt efni.

Lesa meira
Eldgos á Fimmvörðuhálsi

Hraunflæðilíkan

Forrit sem reiknar hraunflæði notar hæðarlíkan sem breytist um leið og hraunið flæðir um það, vegna þess að þar sem kvika storknar breytir hún landslaginu mjög mikið. Í upphafi gossins á Fimmvörðuhálsi voru meiri líkur á að hraunið rynni í Hvanngil en Hrunagil samkvæmt útreikningum. En um nóttina gerði mjög stífa austanátt sem átti þátt í því að hlaða upp gosefnum vestan við sprunguna. Það dugði til þess að hraunið rann í Hrunagil. Nokkrum dögum síðar tók hraunið þó að renna í Hvannárgil.

Lesa meira

Jarðskjálftaforsíða

Leiðbeiningar með nýrri jarðskjálftaforsíðu í mars 2009. Lesa meira

Ítarefni um jarðskjálfta

Jarðskjálftarnir 29. maí 2008 eru þeir mestu frá því stóru skjálftarnir tveir urðu hinn 17. og 21. júní árið 2000. Þeir skjálftar hafa aukið þekkingu okkar á jarðskjálftum umtalsvert. Lesa meira
Hekla

Hvað nema þenslumælar?

Spennubreytingar í jarðskorpunni valda breytingum á rúmmáli bergsins.

Lesa meira

Leiðbeiningar fyrir kvikar síður

Jarðskjálftaupplýsingar síðustu 48 klukkustundirnar koma frá sjálfvirkri útvinnslu úr SIL jarðskjálftakerfinu.

Lesa meira
Jarðskjálftar frá júní 2000, eftirskjálftar

Brotfletir stórskjálftanna frá júní 2000 kortlagðir með eftirskjálftum

Á einu virkasta skjálftasvæði landsins, Suðurlandsbrotabeltinu, hafa orðið allmargir stórir skjálftar á sögulegum tíma. Hrinur stórskjálfta verða hér um bil á hverri öld ... Lesa meira
hvít jökulbunga með sigkötlum

Jökulhlaup

Jökulhlaup er skyndileg útrás vatns úr jökli eða sporðlóni (lón við jökuljaðar) og getur varað allt frá nokkrum klukkutímum upp í nokkrar vikur. Lesa meira
Jarðskjálftastöðvakort frá árinu 2000

Eldgos í Heklu 2000 - þensla

Þegar eldgos hófst í Heklu 26. febrúar 2000 sýndu þenslumælar Veðurstofu Íslands miklar breytingar.

Lesa meira

Jarðskjálftavirkni á Íslandi

Jarðskjálftavirkni á Íslandi skýrist verulega af legu landsins á Miðatlantshafshryggnum. Um hrygginn er gliðnum sem hér við land nemur u.þ.b. 2 sm á ári. Lesa meira

Þenslumælar og mælieiningar

Hugmyndin að baki þenslumælum er einföld en smíði þeirra er nokkurt vandaverk. Þeir eru vökvafylltir stálsívalningar þar sem rúmmálsbreytingar valda vökvaflæði í mælinum sem numið er.

Lesa meira

Þenslumælakerfi Veðurstofunnar

Þenslumælakerfi Veðurstofu Íslands var sett upp árið 1979 til þess að fylgjast með hægfara breytingum á þenslu í jarðskorpunni á Suðurlandi.

Lesa meira

GPS-mælingar

Veðurstofa Íslands rekur net símælandi GPS landmælingatækja víða um landið til þess að fylgjast með jarðskorpuhreyfingum.

Lesa meira

Hvað veldur jarðskjálftum?

Ysta lag jarðarinnar, jarðskorpan, er samsett úr mörgum flekum sem hreyfast hver miðað við annan. Á öllum þessum flekasamskeytum byggist upp spenna sem leysist út við jarðskjálfta. Lesa meira
Jarðskjálftalínurit

Hvað er jarðskjálfti?

Jarðskjálftar verða þegar jarðskorpan, þ. e. hin brotgjarna skel jarðarkringlunnar, brotnar eða hrekkur til á gömlum brotflötum.

Lesa meira
kort af suðvesturlandi - gult nærri Selfoss - litir dofna til allra átta

Stærð og áhrif jarðskjálfta

Þegar jarðskorpan brotnar undan uppsafnaðri spennu leysist ákveðin orka úr læðingi. Oftast breytist mestöll orkan í hreyfiorku sem breiðist út með jarðskjálftabylgjum.

Lesa meira




Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica