Ský og sérstök fyrirbæri
Fallegur þokubogi náðist á mynd að morgni dags þann 18. febrúar 2021 yfir Kaldaðarnesvegi í Sandvíkurhreppi. Smelltu á myndina til að sjá hana stærri.

Þokubogi

Guðrún Nína Petersen 7.9.2021

Þokubogi, eða hvítur regnbogi, líkist hefðbundnum regnboga að því leyti að hann sést við ljósbrot sólgeislunar í dropum í lofti, en í mun minni dropum.

Hefðbundinn regnbogi sést þegar regn fellur en að baki áhorfanda skín sólin (sjá einnig aðra fróðleiksgrein um regnboga)

Líkt og fyrir regnboga þarf sólin að skína í bak áhorfandans svo þokubogi myndist en í stað þess að ljósbrotið sé í regndropum, og litir regnbogans birtist áhorfanda, verður ljósbrotið í skýjadropum.


Þoka er ekkert annað en ský við yfirborð og er samsett úr örsmáum vatnsdropum, skýjadropum sem eru 10–1000 sinnum minni er regndropar. Meðalradíus slíkra dropa er um 0,1 mm, en getur verið allt frá 0,01 til 0,1 mm. Skýjadropar eru svo léttir að þeir svífa en þegar droparnir eru nógu þungir til að falla kallast þeir regndropar, og minnstu regndroparnir súldardropar.






Samanburður á stærðum dropa. Þoka er samsett úr örsmáum vatnsdropum, skýjadropum sem eru 10–1000 sinnum minni er regndropar.


Við ljósbrot í skýjadropum, á sama hátt og í regndropum, endurkastast ljósið í átt að áhorfandanum frá aftara yfirborði dropans, en dreifing ljósgeislans er ríkjandi þáttur. Það þýðir að endurkastaði geislinn er breiðari en frá regndropa og litirnir smyrjast út sem gefur hvítan eða mjög litlítinn þokuboga með daufum rauðum lit yst og bláum innst, eins og má til dæmis sjá á myndinni hér að neðan.


Þokubogi yfir Hákonarstöðum í Jökuldal að morgni 31. október 2016. (Ljósmynd: Páll Halldór Benediktsson)

Oft sjást þessir litir betur á ljósmyndum en með beru auga. Þokubogar eru einnig að jafnaði breiðari en regnbogar. Skýjadropar geta verið í lofti þótt frost fari allt niður að -15 stigum. Það getur því verið þoka og þokubogar birst áhorfenda þó frost sé allmikið líkt og náðist á mynd í Mývatnssveit 2017.


Þokubogi sem myndaðist í frosti í Mývatnssveit þann 3. mars 2017. (Ljósmynd: Hörður Jónasson)





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica