Staðaspár -

Sýna flokk veðurstöðva

Finna spá fyrir veðurstöð

Stöðvalisti
 

Textaspá fyrir Miðhálendið

Miðhálendið

Hægviðri, skýjað með köflum og hiti 3 til 9 stig í nótt. Breytileg átt, 3-8 á morgun, bjart með köflum og stöku síðdegisskúrir. Hiti 10 til 17 stig að deginum.
Spá gerð: 13.06.2026 21:50. Gildir til: 15.06.2026 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á mánudag:
Austlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Væta með köflum vestan- og norðvestanlands, einkum síðdegis, bjart norðaustanlands, en annars skýjað og þurrt að kalla. Hiti 7 til 18 stig, hlýjast norðaustanlands, en svalast austast.

Á þriðjudag:
Norðaustan 5-13 m/s og víða bjart, en skýjað að mestu austast. Hiti 7 til 17 stig, svalast austanlands.

Á miðvikudag (lýðveldisdagurinn):
Norðaustan 8-15 með rigningu, en þurrt að mestu vestanlands. Hiti 5 til 13 stig, mildast vestan- og suðvestanlands.

Á fimmtudag:
Norðlægari 8-15 með rigningu, en úrkomulítið sunnan- og vestanlands. Hiti 5 til 13 stig, mildast syðst.

Á föstudag og laugardag:
Útlit fyrir norðlæga átt með dálítilli vætu og svölu veðri, en bjartara og mildara syðra og líkur á síðdegisskúrum.
Spá gerð: 13.06.2026 21:09. Gildir til: 20.06.2026 12:00.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica