Stöðvarfjörður

Stöðvarfjörður

Hættumat var staðfest af umhverfisráðherra 14. maí 2024

Hættumat vegna ofanflóða á Stöðvarfirði var unnið af Veðurstofu Íslands á vegum hættumatsnefndar Stöðvarfjarðar. Umhverfissráðherra skipaði nefndina 7. júlí 2021 í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 505/2000 um hættumat vegna ofanflóða, flokkun og nýtingu hættusvæða.

Vinna við hættumatið hófst vorið 2022 með öflun gagna og gerð líkanreikninga. Vettvangskönnun fór fram í september það ár.

Hættumatsnefnd Stöðvarfjarðar kynnti tillögu að ofanflóðahættumati fyrir Stöðvarfjörð með opnu húsi í grunnskólanum á Stöðvarfirði 5. október 2023 og jafnframt var bæklingi dreift í öll hús í bænum með helstu niðurstöðum hættumatsins. Á fundinum og við nánari eftirgrennslan eftir hann komu fram nýjar upplýsingar um eitt krapaflóð í Einarsstaðaá ytri og tvær skriður ofan Borgargerðis. Hættumatið var endurskoðað með tilliti til þessa og var endurskoðað hættumat auglýst. Ekki bárust athugasemdir vegna þess.

Hættumatið var staðfest af umhverfisráðherra 14. maí 2024.

Matsvinna

  • Þorbjörg Sigfúsdóttir, jarðfræðingur.
  • Magni Hreinn Jónsson (verkefnisstjóri), verkfræðingur.

Hættumatsnefnd Stöðvarfjarðar

  • Gunnar Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri hjá Landsvirkjun, formaður.
  • Fjóla Guðrún Sigtryggsdóttir, prófessor NTNU, Noregi.
  • Marinó Stefánsson, verkefnastjóri hjá FSRE.
  • Þuríður Lillý Sigurðardóttir, formaður umhverfis- og skipulagsnefndar Fjarðabyggðar.

Skýrslur og kort

Skjöl eru vistuð á pdf-formi.

Hættumatskort (VÍ 2024)

Mat á hættu vegna ofanflóða á Stöðvarfirði (kynningarbæklingur, hættumatsnefnd Stöðvarfjarðar, 2023) (pdf 1,7 Mb) 

Ofanflóðahættumat fyrir Stöðvarfjörð. Greinargerð með hættumatskorti (Veðurstofa Íslands og hættumatsnefnd Stöðvarfjarðar , 2023) (pdf 9.4 Mb)


Nýjar fróðleiksgreinar

Frumniðurstöður rannsókna á berghlaupi í Öskju 21. júlí 2014

Að kvöldi 21. júlí 2014 féll stórt berghlaup úr Suðurbotnum í Öskju niður í Öskjuvatn. Hlaupið er eitt stærsta berghlaup á sögulegum tíma á Íslandi. Hér má finna fyrstu niðurstöður ásamt fjölda mynda, korta og línurita með skýringartextum varðandi þennan atburð.

Lesa meira

Um skriðuföll

Mikill snjór var til fjalla í vetur víða á landinu. Snjó hefur leyst jafnt og þétt síðasta mánuðinn án mikilla vatnsflóða. Við þessar aðstæður má búast við stöku aurskriðum en erfitt getur verið að spá fyrir um hvar þær falla. Ferðafólk ætti að huga vel að aðstæðum þar sem það fer um, reikna með mögulegum vatnavöxtum í ám og lækjum og fara varlega í kringum vatnsósa hlíðar.

Lesa meira

Snjóflóð úr Rangala í Lónafirði

Snjóflóð úr Rangala í Lónafirði náðist á mynd vorið 2013.

Lesa meira

Skriðuföll í Kaldakinn

Um mánaðamótin maí - júní 2013 féllu fjórar stórar jarðvegsskriður og fleiri smærri í Kaldakinn að austanverðu. Þetta er við svokallaðan norðausturveg milli Akureyrar og Húsavíkur. Ekki eru til sögulegar heimildir um skriðuföll á þessum stað í Kinninni en vitað er að stórar skriður hafa fallið annarsstaðar í dalnum.

Lesa meira


Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica