Staðaspár -

Sýna flokk veðurstöðva

Finna spá fyrir veðurstöð

Stöðvalisti
 

Textaspá fyrir allt landið

Veðurhorfur á landinu

Austan 13-20 m/s, hvassast suðvestantil. Rigning, en úrkomuminna norðanlands. Snýst í sunnan 5-13 m/s kringum hádegi og styttir víða upp, fyrst suðvestanlands, en áfram dálítil væta suðaustan- og austanlands. Bætir í úrkomu þar í kvöld, en skúrir vestanlands. Hiti 6 til 12 stig.
Sunnan og suðvestan 5-13 á morgun. Skúraleiðingar vestantil, annars þurrt og bjart með köflum fyrir norðan og austan. Hiti 3 til 8 stig.
Spá gerð: 29.10.2026 07:55. Gildir til: 31.10.2026 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag:
Suðvestan 5-13 m/s, en hvassari á stöku stað. Skúrir eða slydduél, en bjart norðaustan- og austanlands. Hiti 1 til 5 stig.

Á sunnudag:
Suðvestlæg átt, 5-13 m/s, með rigningu vestantil, en úrkomulítið austantil. Hiti 3 til 9 stig.

Á mánudag:
Suðlæg átt með smá vætu vestantil og annars þurrt og bjartviðri norðaustantil. Hiti víða 5 til 11 stig.

Á þriðjudag:
Suðlæg átt, 5-13 og rigning sunnan- og vestanlands en þurrt norðaustantil. Hiti 5 til 11 stig.

Á miðvikudag:
Fremur hæg suðlæg átt, úrkomulaust að mestu. Hiti 3 til 9 stig.
Spá gerð: 29.10.2026 08:30. Gildir til: 05.11.2026 12:00.

Hugleiðingar veðurfræðings

Í dag verður alldjúp lægð við suðausturströnd Grænlands og heldur að okkur mildum suðlægum áttum. Hvasst verður fram eftir morgni suðvestantil og er gul viðvörun í gildi undir Eyjafjöllum þar sem von er á hvassviðri með snörpum vindhviðum. Eins geta orðið allsnarpar vindhviður við fjöll á Vesturlandi. Fremur vætusamt verðum um landið vestanvert og á köflum sunnantil einnig, á meðan norðaustur- og austurland sleppa að lang mestu leiti við vætuna. Fremur milt í veðri. Dagana á eftir verður svipað veður, úrkomubakkar koma uppað vesturströnd landsins og verður úrkomusamast á þeim slóðum, einhverrar vætu er að vænta sunnantil einnig, á meðan Norður- og Austurland sleppa að lang mestu leiti við úrkomu.
Hins vegar ef lægir og léttir til eftir að sól er sest er ansi fljótt að stirðna við jörð og getur því myndast lúmsk hálka sums staðar.
Spá gerð: 29.10.2026 06:31. Gildir til: 30.10.2026 00:00.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica