Staðaspár -

Sýna flokk veðurstöðva

Finna spá fyrir veðurstöð

Stöðvalisti
 

Textaspá fyrir allt landið

Veðurhorfur á landinu

Suðaustan og sunnan 5-13 m/s við suðvesturströndina og norðantil á Snæfellsnesi, en annars hægari breytileg átt. Víða bjartviðri á landinu, en líkur á þokulofti við norður- og austurströndina. Hiti 8 til 18 stig, svalast í þokunni.
Hægviðri í kvöld.
Hæg breytileg átt eða hafgola á morgun, skýjað með köflum og þurrt að kalla, en líkur á síðdegisskúrum sunnan- og vestanlands. Heldur svalara norðan- og austanlands, en annars svipaður hiti.
Spá gerð: 13.06.2026 09:48. Gildir til: 15.06.2026 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á mánudag:
Austlæg eða breytileg átt 3-8 m/s. Skýjað og væta með köflum, einkum síðdegis, en víða bjart norðaustanlands. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast í innsveitum fyrir norðan, en svalast austast.

Á þriðjudag:
Norðaustan 5-13 m/s og yfirleitt bjart, en skúrir vestanlands. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast vestanlands.

Á miðvikudag (lýðveldisdagurinn) og fimmtudag:
Norðlæg átt, 3-10 m/s. Dálítil væta með köflum á Norður- og Austurlandi, en skúrir syðra. Hiti 4 til 12 stig, mildast syðst.

Á föstudag:
Útlit fyrir breytilega átt. Skýjað með köflum og skúrir eða lítilsháttar væta, en þurrt að kalla norðanlands. Hiti breytist lítið.
Spá gerð: 13.06.2026 08:25. Gildir til: 20.06.2026 12:00.

Hugleiðingar veðurfræðings

Það verður hæglætisveður alla helgina og víða bjart veður, en þó má búast við strekkings suðaustanátt við suðvesturströndina og norðantil á Snæfellsnesi í dag. Hlýtt í veðri, en þó verður svalt sums staðar í þokulofti við norður- og austurströndina. Á mánudag verður áfram rólegheita veður, víða bjart og hlýtt á Norðurlandi, en annars staðar skýjað og dálítil væta sunnanlands og stöku síðdegisskúrir í innsveitum norðvestanlands.
Spá gerð: 13.06.2026 06:39. Gildir til: 14.06.2026 00:00.





Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica