Greinar

Fell við Breiðamerkurjökul

Tíðarfar árið 2011 - Trausti Jónsson 20.1.2012

Árið 2011 var í heild hlýtt og veðurfar þess verður að teljast hagstætt. Mikið kuldakast um mestallt land síðari hluta maímánaðar og í byrjun júní spillti þó ásýnd þess að nokkru.

Lesa meira
 

Skýringar við úrkomu- og snjódýptarkort - Þórður Arason 9.1.2012

Skýringar við úrkomu- og snjódýptarkort á vefnum.

Lesa meira
 
kirkjuturn ber við glitský

Fleiri glitský í desember 2011 - Veðurstofa Íslands 12.12.2011

Glitský sjást aldrei á nóttunni, heldur í ljósaskiptunum. Þau sjást best í tvær og hálfa klukkustund í kringum sólarupprás og sólarlag en í svartasta skammdeginu er það aldrei seinna en um kl. sex að kvöldi.

Lesa meira
 
Hvalreki á Skagaströnd í janúar 1918

Kuldametið 1918 - Trausti Jónsson 6.12.2011

Frostaveturinn mikla, 1918, var kaldast í Reykjavík og víðar á landinu frá því mælingar hófust.

Lesa meira
 
snjóskafl í þoku

Skaflinn í Gunnlaugsskarði í Esju - Árni Sigurðsson 4.10.2011

Öðru hvoru er kannað hvort skaflinn í Gunnlaugsskarði er horfinn, eins og gerst hefur undantekningalítið eftir árið 2000. Nú haustið 2011 hafa verið farnar nokkar ferðir og staðfest að skaflinn er á sínum stað. Getur verið skaflinn muni halda velli að þessu sinni?

Lesa meira
 
vedurspa_leikur

Veðurspáleikur - Guðrún Nína Petersen 16.9.2011

Veðurleikurinn er einfaldur og snýst um að gera sem réttastar veðurspár. Frá mánudegi til föstudags gera þátttakendur spá fyrir tvo staði, tvo daga fram í tímann. Spárnar eru síðan bornar saman við veðurathuganir og stig gefin eftir því hversu réttar þær reynast vera. Sá vinnur sem fær flest stig samanlagt fyrir leikdagana fimm.

Lesa meira
 
HaMa_0878

Hrævareldar, haglél og rétt viðbrögð við eldingahættu - Veðurstofa Íslands 15.9.2011

Haglél kemur úr skúraflókum en slík ský geta myndað sterkt rafsvið. Áður en rafsvið verður svo sterkt að eldingar myndist getur jónun átt sér stað. Í rökkri sést þá bláleitur logi frá oddmjóum hlutum, sem kallast hrævareldur, en honum fylgir oft suð. Gönguhópur á Eiríksjökli lenti í hagléli og eldingahættu í ágúst 2011. Viðbrögð hópsins voru hárrétt. Full ástæða er að reyna að koma sér úr aðstæðum þar sem rafsvið er öflugt.

Lesa meira
 
SnZo-a_20110615

Vatnshæðarmælir í Ölfusá - Snorri Zóphóníasson 19.6.2011

Vatnshæðarmælir nr. 64 er brunnmælir á eystri bakka Ölfusár skammt neðan brúar við Selfoss. Vegna þess að þetta er fyrsti vatnshæðarsíriti á Íslandi stefnir Veðurstofan að því að varðveita hann í þeirri mynd sem hann er.

Lesa meira
 
wmo-president_2011

Alþjóðaveðurfræðistofnunin og norðurslóðir - Trausti Jónsson 3.6.2011

Nýafstaðið er aðalþing Alþjóðaveðurfræðistofnunarinnar (WMO). Árni Snorrason, forstjóri Veðurstofunnar og Halldór Pétursson þróunarstjóri Veðurstofunnar, sóttu aðalþingið fyrir Íslands hönd. Vera má að athygli stofnunarinnar muni beinast að norðurslóðum í meira mæli en verið hefur um nokkurt skeið fyrir atbeina nýs forseta sem kjörinn var á aðalþinginu. Líklegt er að slík stefnubreyting hafi áhrif á starfsemi Veðurstofu Íslands.

Lesa meira
 
hópur manna við mælitæki utandyra

Ljóssjá mælir vindhraðabreytingar - Halldór Björnsson 3.6.2011

Ljóssjá, sem mælir bæði endurskin loftagna og Doppler hrif sem stafa af hreyfingu þeirra, gerir það kleift að mæla vindhraðabreytingar í sniði frá yfirborði upp í um 200 m hæð. Þetta býður upp á víðtækari mælingar á vindhraða en áður hafa verið gerðar á Íslandi.

Lesa meira
 
gosmökkur

Áhrif gjóskufalls á leysingu jökla - Oddur Sigurðsson 30.5.2011

Þegar þunn slikja af ösku leggst á yfirborð jökuls minnkar endurkast (albedo) jökulsins verulega og mun stærri hluti geislunar, sem er einn þeirra orkuþátta sem mest áhrif hafa á leysingu jökuls, fer í að bræða snjó og ís. Grímsvatnagosið í maí 2011 lagði mikla gjósku yfir stóran hluta Vatnajökuls. Því má gera ráð fyrir að á sumri komanda verði minna vatn í öllum jökulám frá Tungná í vestri og austur fyrir Skeiðará og gera verður ráð fyrir að aurburður aukist til muna.

Lesa meira
 

Áratugaútgildi - Trausti Jónsson 23.3.2011

Við lok ársins 2010 óskaði Alþjóðaveðurfræðistofnunin eftir því við aðildarþjóðir sínar að þær sendu þeim yfirlit um útgildi sólarhringsúrkomu hámarks- og lágmarkshita hvers áratugar frá 1901 til 2011. Taflan hér að neðan er svar við þeirri fyrirspurn. Lesa meira
 
Snjóflóð í Hnífsdal 2005

Helstu veðuratburðir 2001 til 2010 - Trausti Jónsson 23.3.2011

Við lok ársins 2010 óskaði Alþjóðaveðurfræðistofnunin eftir því við aðildarþjóðir sínar að þær sendu þeim yfirlit um helstu veðurfarshamfarir áratugarins. Hér var erfitt í efni því þessi fyrsti áratugur 21. aldar var fádæma veðragóður hér á landi. Lesa meira
 
kort af flóðbylgju

Sjávarskafl (tsunami) - Halldór Björnsson 11.3.2011

Sjávarskaflinn í Japan 11. mars 2011 orsakaðist af mjög öflugum jarðskjálfta. Kort af ferð flóðbylgunnar má skoða á vef BBC. Á síðasta áratug 20. aldar er talið að um 4000 manns hafi farist í rúmlega 80 slíkum flóðbylgjum. Oftast má rekja sjávarskafla til jarðskjálfta, til dæmis á flekamótum þar sem flekar rekast saman. Lesa meira
 
aðalstöðvar ECMWF

Reiknimiðstöð evrópskra veðurstofa, ECMWF - Veðurstofa Íslands 9.3.2011

Spár Reiknimiðstöðvar evrópskra veðurstofa, ECMWF, eru grundvöllur fyrir veðurspár á Atlantshafi, fyrir flugþjónustu allt að norðurpólnum og margar textaspár sem Veðurstofa Íslands gefur út. Á vefnum vedur.is má víða sjá neðanmálstilkynningar um að gögnin byggist á útreikningum líkans frá ECMWF. Lesa meira
 
foss

Tíðarfar árið 2010 - Trausti Jónsson 21.1.2011

Veðurfar ársins 2010 var óvenjulegt á marga lund hér á landi. Þetta á sérstaklega við um landið sunnan- og vestanvert þar sem árið var í senn í hópi þeirra hlýjustu, þurrustu og snjóléttustu. Tíðarfar var lengst af með ágætum. Illviðri voru með vægasta móti. Lesa meira
 
gosmökkur

Gosmökkurinn úr Eyjafjallajökli og samskipti hans við lofthjúpinn - Guðrún Nína Petersen 13.1.2011

Eldgosið í Eyjafjallajökli stóð í 39 daga. Á þessum tíma voru tvö tímabil með mikilli sprengivirkni en einnig tímabil með hraunmyndun og minni sprengivirkni. Lengd gossins og breytileiki þess gefa einstakt tækifæri til að skoða fjar- og næráhrif lofthjúpsins gosmakkarins og dreifingu ösku og annara gosagna. Lesa meira
 
kort af Íslandi - öskudreif

Rennsli í ám á vatnsárinu 2009/2010 - Snorri Zóphóníasson 29.12.2010

Það sem einkennir rennsli vatnsfalla á vatnsárinu 2009/2010 er annars vegar hin mikla jökulbráð á svæðum þar sem aska frá Eyjafjallajökulsgosinu lá í hæfilegri þykkt á jöklum landsins og hins vegar lítið rennsli í drag- og lindám vegna lítillar úrkomu, einkum á Vesturlandi. Lesa meira
 
hnötturinn skyggður að hálfu nærri Íslandi

Vetrarsólhvörf 2010 - Þórður Arason 21.12.2010

Vetrarsólhvörf, eða vetrarsólstöður, eru þegar sól er lægst á lofti á norðurhveli jarðar og dagurinn stystur. Vetrarsólhvörf 2010 eru 21. desember kl. 23:38.

Lesa meira
 
Esjan

Fannir í Esju mæla lofthita - Páll Bergþórsson 10.12.2010

Sumarið 2010 hvarf skaflinn í Gunnlaugsskarði í Esju tíunda árið í röð. Það hefur aldrei gerst svo lengi samfellt síðan farið var að fylgjast nokkuð reglulega með þessari fönn árið 1909. Lesa meira
 
A-spá

Áhrif reikninets á veðurspár - Guðrún Nína Petersen 26.11.2010

Myndrænar hitaspár á vef Veðurstofunnar, svokallaðar veðurþáttaspár, eru hreinar tölvuspár. Ef grannt er skoðað sést að þeim er skipt upp í þrjá flokka: A, B og C. Lesa meira
 
hnötturinn skyggður að hálfu

Haustjafndægur 2010 - Þórður Arason 22.9.2010

Jafndægur eru tvisvar á ári. Þá er sólin beint yfir miðbaug jarðar og stefna frá miðju jarðar í sólmiðju hornrétt á snúningsás jarðar. Þessi atburður verður á tilteknu augnabliki innan dagsins. Haustjafndægur 2010 eru 23. september kl. 03:09.

Lesa meira
 
tveir regnbogar rísa upp frá sama stað

Speglaðir regnbogar - Hróbjartur Þorsteinsson 10.9.2010

Regnbogar sem skarast hafa mismunandi miðpunkta sem hægt að útskýra með tilvist tveggja ljósgjafa. Algengasta ástæðan er sú, að sólarljósið speglast af sléttu yfirborði vatns og myndar þannig speglaðan ljósgjafa fyrir neðan sjóndeildarhringinn. Lesa meira
 
Vifilsstadir_t13

Vífilsstaðir - Trausti Jónsson 7.9.2010

Nú eru eitt hundrað ár liðin frá stofnun Vífilsstaðaspítala. Þá má nota tækifærið til að rifja upp að þar var veðurathugunarstöð á árunum 1910 til 1923. Fyrstu sólskinsstundamælingar á landinu voru gerðar á Víflisstöðum. Úrkomumælingar voru gerðar á staðnum 1963 til 1999. Lesa meira
 

Háloftakort: 300 hPa - Trausti Jónsson 1.9.2010

Á norðurslóðum er 300 hPa-flöturinn mjög ofarlega í veðrahvolfinu ekki fjarri athafnasvæði þeirrar meginvindrastar sem kennd er við pólinn. Þar er því gott að fylgjast með röstinni, bylgjuhnykkjum hennar og tengdum fyrirbrigðum. Lesa meira
 
JGE_Img_6930-2

Íslenska hitamælaskýlið - Trausti Jónsson 1.9.2010

Íslenska hitamælaskýlið er öðruvísi en þau sem algengust eru í heiminum, það er t.d. talsvert lokaðra. Tiltölulega opin rimlaskýli eru algengust, rimlar á skýlinu eru þá skásettir þannig að beinnar geislunar gæti ekki við mælana. Lesa meira
 
kort af suðvesturhorni landsins með vindörvum

Veðursjá Veðurstofu Íslands - Hreinn Hjartarson 25.6.2010

Í vor lauk endurbótum á veðursjá Veðurstofunnar. Þá bættist við rafeinda- og hugbúnaður sem gerir kleift að meta vindafar á svæðinu með svokallaðri Doppler mælingu.

Lesa meira
 
hnötturinn skyggður að hálfu fjarri Íslandi

Sumarsólstöður 2010 - Þórður Arason 18.6.2010

Sumarsólstöður eru þegar sól er hæst á lofti á norðurhveli jarðar og þær ber ýmist upp á 20. eða 21. júní. Árið 2010 voru þær mánudaginn 21. júní kl. 11:28.

Lesa meira
 

Úrkoma í grennd við Eyjafjallajökul - Þórður Arason 10.6.2010

Í þessari grein má fylgjast með úrkomu í grennd við Eyjafjallajökul eftir eldgosið, vorið 2010.

Lesa meira
 
Reykir í Fnjóskadal

Tuttugu stiga syrpur - Trausti Jónsson 9.6.2010

Á sumrin koma stöku sinnum kaflar þar sem hiti nær 20 stigum einhvers staðar á landinu marga daga í röð. Hversu langar hafa slíkar syrpur orðið? Lesa meira
 
Útsýn við veðurstöðina á Raufarhöfn

Raufarhöfn - Trausti Jónsson 7.5.2010

Raufarhöfn er ein af mikilvægustu veðurstöðvum landsins, útvörður þess í norðaustri. Lesa meira
 
Frá Raufarhöfn

Tuttugu stiga mörkin - Trausti Jónsson 5.5.2010

Hiti hefur farið í að minnsta kosti 20 stig á hverju sumri á Íslandi síðan 1879. Það er hins vegar mjög misjafnt hversu snemma sumars eða vors það gerist. Lesa meira
 
lón fyrir framan skriðjökul

Eyjafjallajökulsgosið 1612 eða 1613 - Veðurstofa Íslands 29.4.2010

Gos varð í Eyjafjallajökli 1612 eða 1613. Tékkneskur ferðamaður lýsti gosinu stuttlega. Lesa meira
 

Jaðarlagið - Trausti Jónsson 29.4.2010

Jaðarlagið er skilgreint sem sá hluti veðrahvolfsins sem er undir svo nánum áhrifum frá yfirborði jarðar að fréttir af breytingum þar geti borist á klukkustund eða minna í gegnum allt lagið. Lesa meira
 
dökkur mökkur yfir dalalæðu snemma dags

Lóðrétt útbreiðsla ösku - Trausti Jónsson 26.4.2010

Stöðugleiki lofthjúpsins hverju sinni ræður mjög lóðréttri blöndun ösku og mengunarefna. Loft er mjög óstöðugt í gosmekki en ásýnd hans ræðst bæði af krafti gossins, stöðugleika loftsins umhverfis, og rakamagni. Lesa meira
 

Öskufall á veðurstöðvum - Veðurstofa Íslands 23.4.2010

Hér er safnað saman tilkynningum frá veðurathugunarmönnum um öskufall á veðurstöðvum. Lesa meira
 

Aðalatriði háloftarits 1 - Trausti Jónsson 23.4.2010

Á háloftariti má á augabragði lesa stöðugleika lofthjúpsins eins og hann er þegar athugunin er gerð. Lesa meira
 
timarit.is

Gosin 1821-1823 - Trausti Jónsson 16.4.2010

Klausturpósturinn var fréttablað síns tíma og kom alloft út á ári hverju. Í blaðinu eru fáeinir pistlar um Eyjafjallajökulsgosið 1821-1823 sem og frásögn Sveins Pálssonar um gosið í Kötlu 1823.

Lesa meira
 
gervihnattamynd

Aska á gervitunglamyndum - Hróbjartur Þorsteinsson 16.4.2010

Gosaska og smáar svifagnir einkennast af ákveðnum mismun í birtuhitastigsmælingu á tveimur innrauðum rásum í veðurtunglum og jarðrannsóknatunglum. Greiningin takmarkast helst af skýjafari en á gervitunglamyndum sést að mikill hluti gosöskunnar er hulinn háskýjum. Þetta hefur valdið töluverðri óvissu um takmörk og útbreiðslu gosöskunnar. Lesa meira
 
gosbólstrar

Hvert berst gosaska? - Trausti Jónsson 15.4.2010

Í lofthjúpnum breytast hiti og vindur með hæð. Bratti hitabreytinganna (hitafallandinn) ræður mestu um stöðugleika loftsins þó fleira komi þar við sögu. Þrýstisvið ræður vindum. Lesa meira
 
Mistur, Snæfell

Mistur - Trausti Jónsson 24.3.2010

Nú er eldur uppi og vel þess virði að fylgjast með litbrigðum himinsins jafnvel þó um lítil gos sé að ræða. Mistur er eitt þeirra atriða sem fylgjast ber með. Lesa meira
 
Eldgos á Fimmvörðuhálsi

Eldbólstrar - Trausti Jónsson 24.3.2010

Afmarkað hitauppstreymi svo sem frá eldgosum, gróðureldum eða stórum iðjuverum myndar oft sérstaka bólstra. Í uppflettibókum hafa þeir fengið heitið pyrocumulus, það útleggst sem eldbólstur. Lesa meira
 

Kortaritun - Trausti Jónsson 24.3.2010

Veðurathuganir á greiningarkortum þeim sem sjá má á vefnum eru ritaðar inn eftir sérstöku stöðva- og táknsniði. Þetta táknsnið þróaðist á löngum tíma til þess háttar sem er í dag en engar teljandi breytingar hafa þó verið á því gerðar í meira en 60 ár. Hér er leitast við að skýra merkingu svæða og tákna sniðsins. Lesa meira
 
Á Fimmvörðuhálsi

Helstu páskahret - Trausti Jónsson 24.3.2010

Vorhret eru algeng á Íslandi. Einhvers konar páskahret gerir að meðaltali á um þriggja ára fresti. Fyrr á árum tengdust hretin sauðfjárhaldi og útróðrum, nú á dögum meira samgöngum og ræktun. Lesa meira
 
hnötturinn skyggður að hálfu

Vorjafndægur 2010 - Þórður Arason 19.3.2010

Jafndægur eru tvisvar á ári, um 20.-21. mars og 22.-23. september. Tímasetningin hnikast örlítið milli ára, eftir því hvernig stendur á hlaupári. Vorjafndægur 2010 eru 20. mars kl. 17:32.

Lesa meira
 
Hvitarvatn_40552

Vatnið - Snorri Zóphóníasson 19.3.2010

Starfsemi Veðurstofu Íslands tengist mikið hringrás vatnsins. Þar er spáð fyrir um úrkomu, úrkoma mæld, mælt afrennsli vatns af landi, fylgst með þróun jökla, metin hætta og viðhafður viðbúnaður vegna snjóflóða, rekið viðvörunarkerfi vegna flóða og forvarnir vegna aurskriða.

Lesa meira
 
flugslod

Flugslóðar - Guðrún Nína Petersen 17.3.2010

Flugslóðar eru þunn ísský sem myndast þegar heitur og rakur útblástur frá þotum blandast við umliggjandi loftið og úr verður loftblanda sem er mettuð. Lesa meira
 
forsíða bókar

Veðurannálar - Trausti Jónsson 4.3.2010

Sigurður Þór Guðjónsson hefur afritað veðurupplýsingar úr annálum sem Bókmenntafélagið og fleiri hafa gefið út. Hér er afrit af þeirri uppskrift ásamt skýringum og skrám. Lesa meira
 
hrím á stráum

Kuldar í Evrópu - Trausti Jónsson 3.2.2010

Kuldarnir í Evrópu snemma árs 2010 hafa verið algengt fréttaefni fjölmiðla. Þeir eru þó langt í frá einstakir. Hér er rifjuð upp grein sem birtist í Lesbók Morgunblaðsins 1987 og fjallaði um mikla kulda í Evrópu í janúar það ár. Nýjar skýringarmyndir eru settar inn og orðalagi nokkuð hnikað til samræmis við það. Lesa meira
 
Sólstafir

Sólstafir og rökkurskuggar - Trausti Jónsson 3.2.2010

Sólstafir verða til þegar sólarljós skín gegnum fjarlæg fjallaskörð eða rof í skýjum. Oft er sólin þá nálæg sjóndeildarhring eða jafnvel undir honum, þannig að geislunum slær upp á himininn. Þá má nefna fyrirbrigðið rökkurskugga eða rökkurgeisla.

Lesa meira
 
Ísröst

Ísland og nao-fyrirbrigðið - Trausti Jónsson 25.1.2010

Fjallað er um veðurfyrirbrigði sem á ensku er nefnt North Atlantic Oscillation. Oft er til þess vísað í umfjöllun um veðurlag og veðurfarsbreytingar á heimsvísu. Íslenskt nafn skortir, en hér er tekið það ráð að nota ensku skammstöfunina nao sem nafn á fyrirbrigðinu og hafa það hvorugkyns. Langur listi með ítarefni fylgir umfjölluninni.

Lesa meira
 
Hnattræn hlýnun

Nokkrar staðreyndir um loftslag og loftslagsbreytingar - Veðurstofa Íslands 22.1.2010

Í tengslum við loftslagsþingið í Kaupmannahöfn í desember 2009 hafa farið fram miklar umræður um hlýnun jarðar og sýnist sitt hverjum. Rætt hefur verið um hugsanlega og líklega hlýnun, hækkun sjávarborðs og ýmsar aðrar afleiðingar, sem sumar eru þegar fram komnar, markmið um þá hlýnun sem unnt er að sætta sig við o.s.frv.

Lesa meira
 
hrim_a_hestasteini

Yfirborðshrím 2 - Guðrún Nína Petersen 15.1.2010

Um áramótin var stillt og kalt í veðri og aðstæður til hrímmyndunar því eins og best er á kosið. Lesa meira
 
Birkihrísla

Árið 2009 - Trausti Jónsson 15.1.2010

Tíðarfar var hagstætt á árinu 2009. Hiti var langt yfir meðallagi um landið sunnanvert og einnig vel yfir meðallagi nyrðra. Árið var það þurrasta í Reykjavík frá 1995 en það úrkomumesta á Akureyri frá 1991. Illviðri voru fá á árinu og það var snjólétt víðast hvar. Lesa meira
 
Vetrarstillur á miðhálendinu

Vindkælitafla - Árni Sigurðsson 14.1.2010

Meðfylgjandi vindkælitafla er byggð á mælingum á varmatapi í um 1,7 m hæð frá jörð. Í töflunni er miðað við vindhraða í 10 m hæð en búið er að leiðrétta fyrir hæðarmun. Varast ber að treysta á töfluna í blindni því hún tekur ekki til allra kælingarvalda utandyra. Einnig þarf að huga að vætu og þeirri kælingu sem hún getur valdið.

Lesa meira
 
vindskafin ský

Vindskafin ský 2 - Guðrún Nína Petersen 11.1.2010

Vindskafin ský eru kyrrstæð linsulöguð ský sem myndast yfir fjöllum og stundum hlémegin við fjöll.

Lesa meira
 
kelvin_helmholtz

Ókyrrð í háloftum - Guðrún Nína Petersen 16.12.2009

Ókyrrð eða kvika er óregluleg hreyfing lofts og þá er yfirleitt átt við lóðrétta hreyfingu. Þar sem loftið í háloftunum er þurrt og það er lítið um ský er loftið að jafnaði tært og ókyrrðin ósýnileg þótt hún sé áþreifanleg. Lesa meira
 
Við Elliðavatn

Jólasnjór í Reykjavík - Trausti Jónsson 11.12.2009

Nokkar upplýsingar má finna í fréttablöðum um snjóhulu í Reykjavík á árunum 1875 til 1920, ítarlegastar í veðurpistlum Jónasar Jónassen.

Lesa meira
 
Thordur-Jonasson

Veðurathuganir í Reykjavík 1857 til 1880 - Trausti Jónsson 28.10.2009

Jón Þorsteinsson landlæknir hætti veðurathugunum í lok febrúar 1854, og lést árið eftir. Þá var veðurathuganalaust í Reykjavík. Ekki er ljóst hvað gerðist á árunum 1854 til 1871, en síðarnefnda árið komst aftur regla á athuganir. Lesa meira
 
Jonas-Jonassen

Veðurbækur Jónasar Jónassen landlæknis - Trausti Jónsson 28.10.2009

Á árunum 1880 til 1907 skrifaði dr. Jónas Jónassen landlæknir reglulega yfirlitspistla um veður í Reykjavík. Birtust þeir í landsmálablöðunum Þjóðólfi og Ísafold. Pistlarnir gefa mjög gott yfirlit um tíðarfar í Reykjavík. Lesa meira
 
gilsbakki_ca1980

Gilsbakki í Hvítársíðu - Trausti Jónsson 27.10.2009

Danska veðurstofan stóð fyrir veðurathugunum á Gilsbakka í Hvítársíðu í Borgarfirði á árunum 1887 til 1912. Mikið vantar í mælingarnar, en þó hefur tekist að reikna hitameðaltöl einstakra mánaða á tímabilinu. Lesa meira
 
stodvar951-Sidumuli

Síðumúli - Trausti Jónsson 26.10.2009

Skeytastöð var sett á laggirnar í Síðumúla í Borgarfirði í ágúst 1934. Athuganir héldust þar, samfellt, þar til í apríl 1986. Lesa meira
 
hvít og grá ský á dökkbláum himni

Grá eða hvít ský? - Trausti Jónsson 22.10.2009

Ský endurkasta hluta af því ljósi sem á þau fellur, ljósið kemur ýmist beint frá sólu eða er endurkast frá himni, jörð eða öðrum skýjum. Ský, sem sólarljósið skín á, virðast oftast hvít, en önnur virðast grá. Lesa meira
 
hiti_borgaris

Haustþing Veðurfræðifélagsins - Guðrún Nína Petersen 13.10.2009

Haustþing Veðurfræðifélagsins var haldið miðvikudaginn 21. október í Orkugarði. Veðurfræðifélagið er opið öllum áhugamönnum um veður og veðurfræði og þingið sömuleiðis. Lesa meira
 
Á jökli - fólk og jeppar í snjóbyl

Illviðrið 9. til 10. október 2009 - Trausti Jónsson 12.10.2009

Mikið hvassviðri gekk yfir landið föstudaginn 9. október 2009 og fram eftir nóttu þann 10. Einna mest tjón varð á Kjalarnesi og víða urðu smávægilegar skemmdir. Óvenju hvasst varð í Vestmannaeyjum. Lesa meira
 
vegur, húsaþyrping, fjörður og fjöll í bakgrunni

Á Grænhóli á Ströndum 1929 - Trausti Jónsson 21.8.2009

Árið 1929 var eitt mesta gæðaár tuttugustu aldarinnar hvað veðurfar á Íslandi varðar. Hér má sjá hvernig það blasti við augum Níelsar Jónssonar en hann var veðurathugunarmaður á Grænhóli við Gjögur á Ströndum á árunum 1921 til 1934. Lesa meira
 
Sólskinsstundamælir

Þurrkar 4 - Trausti Jónsson 19.8.2009

Úrkomugagnasafn Veðurstofunnar er langt í frá einsleitt, en hér er gerð tilraun til að meta hverjir eru þurrustu og votustu almanaksmánuðirnir frá og með 1924 til og með 2008. Lesa meira
 
Frá Reykjahlíð við Mývatn

Þurrkar 3 - Trausti Jónsson 19.8.2009

Úrkoma þurrustu áranna sem koma á hverjum stað er á bilinu 65 til 75% af meðalársúrkomu á stöðvum á mestöllu landinu, en heldur minni inn til landsins fyrir norðan, á bilinu 50-65%. Lesa meira
 
hópur hjólreiðamanna

Þurrkar 2 - Trausti Jónsson 12.8.2009

Fjallað er um þurrustu mánuðina og löng þurr tímabil í Reykjavík. Þurrasti mánuðurinn var maí 1931, en þá var úrkoman aðeins 0,3 mm.

Lesa meira
 
þrír menn á graslendi með fistölvu, lítil fjarstýrð flugvél í grasinu

Veðurmælingar við Esju - Haraldur Ólafsson 8.8.2009

Mælingar á veðri með ómönnuðu loftfari hafa verið gerðar í Álfsnesi og við Kollafjörð. Mælt var nokkra hafgoludaga en líka í suðaustanátt þegar röst myndast við Esjuna. Lesa meira
 
sprunginn leir

Þurrkar 1 - Trausti Jónsson 6.8.2009

Júlímánuður 2009 var einhver sá þurrasti sem vitað er um í Reykjavík. Gefur það tilefni til vangaveltna um lengd þurrtímabila og ákefð þeirra. Í þessari grein er fjallað um lengd þurrkkafla, en síðar verður fjallað um þurra mánuði og lengri tímabil.

Lesa meira
 
kort með hæðalínum í hring - litaflekkir

Hofsjökull þynnist - Tómas Jóhannesson 28.7.2009

Hofsjökull hefur þynnst og hopað á síðustu árum eins og aðrir jöklar á landinu. Meirihluti Hofsjökuls var kortlagður með leysitækjum úr flugvél í september 2008. Lesa meira
 
kort af jökli

Snæfellsjökull þynnist - Tómas Jóhannesson 28.7.2009

Snæfellsjökull er um 12,5 km2 að flatarmáli og hefur þynnst og hopað mikið á síðustu árum, að sögn staðkunnugra heimamanna. Það hefur nú verið staðfest með mælingum. Lesa meira
 
þvottur blaktir í vindi, grónar flatir, haf og klettar

Hæsti hiti á veðurstöðvum - Trausti Jónsson 1.7.2009

Listi yfir hæsta hita sem mælst hefur á einstökum veðurstöðvum á Íslandi, frá 1873 þar til 5.júlí 2009.

Lesa meira
 
Tröllakirkja á Holtavörðuheiði.

Hvað er hnjúkaþeyr? - Guðrún Nína Petersen 22.6.2009

Hnjúkaþeyr er hlýr og þurr vindur sem blæs af fjöllum. Hnjúkaþeyr getur verið mjög hvass og hviðugjarn en þarf ekki að vera það. Lesa meira
 
gervihnattamynd - strönd - tvær myndir víxlast

Breiðamerkurjökull - Oddur Sigurðsson 5.6.2009

Breiðamerkurjökull er sá jökull sem hefur verið nærgöngulastur við byggðir landsins. Á nokkrum öldum gekk jökullinn yfir blómlega sveit austan Öræfa. Skömmu fyrir aldamótin 1900 vantaði tæplega 300 m á að jökulsporðurinn næði út í sjó. Lesa meira
 
Skipið Knorr

Sumarþing Veðurfræðifélagsins - Trausti Jónsson 28.5.2009

Lesa má ágrip erinda á sumarþingi sem haldið var í byrjun júní 2009 í Orkugarði við Grensásveg. Allir eru velkomnir á fræðaþing og fræðafundi Veðurfræðifélagins. Lesa meira
 
Blönduós

Blönduós - Trausti Jónsson 19.5.2009

Fyrstu veðurmælingar voru gerðar á Blönduósi 1887. Veðurstofan setti þar upp skeytastöð í árslok 1927. Árið 1967 var farið að athuga á Hjaltabakka, en 1978 var stöðin aftur flutt að Blönduósi. Þar lögðust mannaðar athuganir af 2003 en sjálfvirkar athuganir tóku við. Lesa meira
 
maður krýpur í snjó, dregur ískjarna úr hólki

Afkomumælingar á Hofsjökli - Þorsteinn Þorsteinsson 18.5.2009

Vetrarákoma var mæld á Hofsjökli í árlegri vorferð á jökulinn dagana 30.apríl - 6. maí sl. Ekið var á sérbúnum jeppum upp að efstu Kvíslaveitustíflu og þaðan á vélsleðum yfir jökulinn að Ingólfsskála. Frá þeirri bækistöð var farið á hverjum degi til mælinga á Sátujökli, Þjórsárjökli og Blágnípujökli. Lesa meira
 
snævi þakin tré, snjóað hefur í logni

Við hvaða hita snjóar? - Trausti Jónsson 14.5.2009

Stöku sinnum snjóar í skamma stund í 2 til 4°C hita, en hiti er langoftast neðan við 0,5°C í snjókomu. Líkur á mikilli snjókomu minnka að jafnaði eftir því sem frost er meira, en mikil úrkoma myndast þó í skýjum þar sem hiti er lægri en -8°C sé uppstreymi þar jafnframt mikið.

Lesa meira
 
Rigningarpollur utan í snjóskafli

Snjór bráðnar - Trausti Jónsson 14.5.2009

Yfir háveturinn er það yfirleitt hláka og rigning sem mest bræðir af snjó. Hlutur sólar og beinnar uppgufunar íss og snævar vex þegar kemur fram á vorið og þegar sól er hæst á lofti, dagur lengstur og loft þurrast getur hann orðið yfirgnæfandi. Lesa meira
 
Frá Vestmannaeyjum

Úrkomumælingar í Vestmannaeyjum - Trausti Jónsson 6.5.2009

Úrkomumælingar hófust í Vestmannaeyjakaupstað í nóvember 1880. Mælingar fluttust að Stórhöfða haustið 1921 og þar hefur úrkoma verið mæld síðan. Mælt var á báðum stöðum 1965 til 1973 og sjálfvirkar mælingar hafa verið gerðar í kaupstaðnum nokkur síðustu ár.

Lesa meira
 
Bláberjalyng

Blautt gras að morgni - Trausti Jónsson 28.4.2009

Af hverju er grasið blautt á morgnana á sumrin þegar sól hefur verið deginum áður? Lesa meira
 
Flatey á Skjálfanda

Hitamunur milli nærliggjandi staða - Trausti Jónsson 28.4.2009

Ástæður mikils samtíma hitamunar milli nærliggjandi staða geta verið margþættar. Oft koma þó afstaða lands og sjávar á stöðunum við sögu og sömuleiðis fjöll í námunda við annan hvorn staðinn eða báða. Sjórinn jafnar hitamun dags og nætur. Lesa meira
 
Versalir á Sprengisandi

Munur á veðri eftir landshlutum - Trausti Jónsson 28.4.2009

Munur á veðri eftir landshlutum ræðst af miklu leyti af fjöllum og hálendi Íslands, en afstaða lands og sjávar, hnattstöðumunur og fleira hefur einnig áhrif. Vindátt og stöðugleiki loftsins ráða mestu um úrkomu- og skýjamyndun. Lesa meira
 
skýjamynd

Hver er munurinn á hita- og kuldaskilum? - Trausti Jónsson 28.4.2009

Skil myndast þar sem loft af mismunandi uppruna mætist, til þæginda er talað um að tveir loftmassar takist á. Skil eru sjaldnast alveg kyrrstæð heldur hörfar annar loftmassinn oftast fyrir hinum sem þá sækir fram. Lesa meira
 
himinsýn og ský, hús og tré neðst í forgrunni

Skýjafar og sunnanátt - Trausti Jónsson 28.4.2009

Sjaldan er léttskýjað í Reykjavík í sunnanátt, en kemur þó fyrir. Lesa meira
 
heiður himinn, fjallstindar, hvít þoka liggur á milli þeirra

Austfjarðaþoka - Trausti Jónsson 28.4.2009

Þokan sem oft liggur yfir Austur-Íslandsstraumnum undan nesjum á Austfjörðum er gjarnan nefnd Austfjarðaþoka. Lesa meira
 
kort af hafi og löndum, elding táknuð með rauðum flekk

Um eldingar - Haraldur Ólafsson 16.4.2009

Elding er ljós sem sést frá rafstraumi sem hleypur milli staða í skýjum eða milli skýja og yfirborðs jarðar. Á vef Veðurstofunnar má skoða kort sem sýna eldingar yfir Evrópu og Atlantshafi, eldingar við Ísland síðastliðna viku og kort sem sýna líkur á þrumum yfir Íslandi næstu daga.

Lesa meira
 
Yfirborðshrím

Yfirborðshrím - Guðrún Nína Petersen 7.4.2009

Yfirborðshrím myndast þegar hluti af vatnsgufunni í loftinu þéttist og hélar á yfirborði, þ.e. ís myndast beint úr vatnsgufu. Lesa meira
 

Spáforsíða - Trausti Jónsson 17.3.2009

Stutt lýsing á kortum og staðarspám á spáforsíðu. Lesa meira
 

Veðurathuganaforsíða - Trausti Jónsson 17.3.2009

Hér má finna stuttar skýringar á korti og listum veðurathuganaforsíðu. Lesa meira
 
Vindgerðir snjóboltar

Vindur býr til snjóbolta - Veðurstofa Íslands 4.3.2009

Stöku sinnum sést fjöldi snjóbolta, sem vindur hefur búið til, á dreif um sléttar snævi þakktar grundir, jafnvel hundruð bolta á einum túnbletti. Ekki er kunnugt um sérstakt nafn á fyrirbrigðinu. Lesa meira
 
séð úr Svartárkoti til fjalla

Landsdægurmet - Trausti Jónsson 12.2.2009

Unnið er að skrá um lægsta og hæsta hita sem mælst hefur hvern dag ársins á Íslandi. Þann 12. febrúar 2009 mældist meira frost en vitað er um áður þann mánaðardag hér á landi. Lágmarkshitamet falla nokkur á hverju ári.

Lesa meira
 
úr gfdex-flugi

Þorraþing Veðurfræðifélagsins - Trausti Jónsson 12.2.2009

Ágrip nokkurra erinda á Þorraþingi Veðurfræðifélagsins í febrúar 2009.

Lesa meira
 
Frá Húsavík

Óvenjulegt veðurfar 1924 - Trausti Jónsson 11.2.2009

Benedikt Jónsson frá Auðnum skrifaði Veðurstofunni athyglisvert bréf síðsumars 1924. Þar ræðir hann um miklar breytingar á veðurfari. Lesa meira
 
Flatey á Breiðafirði

Sumar og haust 1926 - Trausti Jónsson 11.2.2009

Rifjuð eru upp nokkur brot úr bréfum frá veðurathugunarmönnum frá árinu 1926. Lesa meira
 
dalurinn Brandi og hvilftarjöklar

Bók um nöfn á íslenskum jöklum - Oddur Sigurðsson 6.2.2009

Haustið 2008 kom út á ensku bók þar sem talin eru upp öll örnefni íslenskra jökla, hvar þau er að finna og birt mynd af öllum nefndum jöklum á Íslandi. Lesa meira
 
úrkomukort af Íslandi

Úrkomukort í hárri upplausn - Philippe Crochet 24.1.2009

Stafræn úrkomukort Veðurstofu Íslands, sem gefa mun nákvæmari upplýsingar en áður, hafa vakið athygli erlendis og nota Norðmenn nú sömu aðferðafræði til rannsókna á jöklum þarlendis.

Lesa meira
 
gosmökkur yfir Vatnajökli

Gerðir jökla á Íslandi - Oddur Sigurðsson 20.1.2009

Jöklar á Íslandi skiptast í tvo flokka. Annars vegar eru jöklar sem bregðast við loftslagsbreytingum nánast jafnóðum en hins vegar jöklar sem styttast um langt árabil og hlaupa svo skyndilega fram án þess að loftslag gefi sérstakt tilefni til þess. Lesa meira
 
Þoka á Látrabjargi

Árið 2008 - Trausti Jónsson 7.1.2009

Sumarhelmingur ársins, frá maí til og með september var óvenjuhlýr um landið sunnan- og vestanvert. Tíð var einnig góð á þessum tíma norðan- og austanlands að öðru leyti en því að júní var þar fremur kaldur og drungalegur. Lesa meira
 
jólaljós

Hlý og köld jól í Stykkishólmi - Trausti Jónsson 6.1.2009

Borinn er saman meðalhiti klukkan 9 að morgni í Stykkishólmi á jólum og við áramót frá 1846 til 2008. Lesa meira
 
Teigarhorn 19.öld

Um danskar og íslenskar árbækur - Trausti Jónsson 3.12.2008

Ársskýrslunar Meteorologisk Aabog (1873 til 1919) og Íslensk Veðurfarsbók (1920 til 1923) hafa nú verið skannaðar og eru aðgengilegar á timarit.is. Hér má finna almenna umfjöllun og skýringar á efni bókanna.

Lesa meira
 
Bréf frá Þórshöfn 1921

Veðurmerki við Þistilfjörð 1921 - Trausti Jónsson 21.11.2008

Í fórum Veðurstofunnar er stutt bréf frá Vigfúsi Kristjánssyni veðurathugunarmanni á Þórshöfn á Langanesi. Hann lýsir þar fáeinum veðurmerkjum á þeim slóðum. Lesa meira
 
Frá Nepal

Monsún - misserisvindur - Trausti Jónsson 20.10.2008

Í upphaflegri merkingu er monsún nafn á árstíðabundinni breytingu vinda á norðanverðu Indlandshafi, í Suður- og Austur-Asíu og suður með austurströnd Afríku. Á síðari árum hefur hugtakið fengið breiðari merkingu. Lesa meira
 
stígvél í polli

Illviðrið 16. til 17. september 2008 - Trausti Jónsson 18.9.2008

Á landinu gerði hvassviðri með miklu úrfelli að kvöldi 16. 9. og þá um nóttina. Lesa meira
 
lítil stúlka starir upp til fjalla við malarstíg í grónu landi

Hitabylgjan í júlí 2008 - Trausti Jónsson 1.8.2008

Óvenjulega hitabylgju gerði síðari hluta mánaðarins og hitamet voru sett allvíða. M.a. mældist hiti á Þingvöllum 29,7 stig þann 30. Það er hæsti hiti sem mælst hefur á staðlaðri sjálfvirkri stöð hér á landi. Lesa meira
 
Fellibylurinn Betsy

Fellibyljir 7 - Trausti Jónsson 23.7.2008

Alsiða er að gefa fellibyljum nafn til að forðast rugling þegar þeir eru fleiri en einn á ferð. Lesa meira
 
hitabeltisstormurinn Celia 1962 nálgast

Fellibyljir 6 - Trausti Jónsson 23.7.2008

Greint er á milli nokkurra upprunagerða fellibylja. Lesa meira
 
Helene 1988

Fellibyljir 5 - Trausti Jónsson 23.7.2008

Gleiðstreymið efst í austanbylgjunum getur auðveldað uppstreymi, jafnvel dregið upp loft að neðan sem þá kólnar. Sé það loft rakamettað byrjar raki þess að þéttast. Lesa meira
 
Fellibylur- vindsniðakort

Fellibyljir 4 - Trausti Jónsson 23.7.2008

Raki, lóðréttur stöðugleiki og vindsniði skipta höfuðmáli í búskap fellibylja. Lesa meira
 
sjávarhiti meiri en 26 stig

Fellibyljir 3 - Trausti Jónsson 23.7.2008

Fellibyljir eru knúnir af losun dulvarma úr raka sem gufar upp í sólskini staðvindabeltanna. Lesa meira
 
fellibyljabrautir

Fellibyljir 2 - Trausti Jónsson 22.7.2008

Ekki er beint samband milli umfangs og styrks fellibylja. Svokallað auga einkennir sterka fellibylji. Til hægðarauka eru fellibyljir flokkaðir eftir styrk. Saffir-Simpson-kvarðinn er algengastur. Lesa meira
 
fellibylurinn Ellen 20. september 1973

Fellibyljir 1 - Trausti Jónsson 21.7.2008

Fyrsta grein af nokkrum sem fjalla um fellibylji. Hér má finna lista með íslenskum þýðingum helstu hugtaka sem koma við sögu í fellibyljafréttum. Lesa meira
 
svarthvít mynd, Kvísker 1961, tveir menn

Alþjóðaveðurdagurinn - Magnús Jónsson 18.3.2008

Veðurstofur halda 23. mars hátíðlegan víða um heim og nú, 2008, ber hann upp á páskadag. Kjörorðið í ár er "Jörðin skráð og skoðuð til bættrar framtíðar". Lesa meira
 
Sjálfvirk veðurstöð á Gagnheiði.

Mesti vindhraði á landinu - Trausti Jónsson 12.3.2008

Mesti 10-mínútna meðalvindhraði á landinu: 62,5 m/s á Skálafelli 20. janúar 1998 kl. 13. Mesta 3 sekúndna vindhviða á landinu: 74,5 m/s á Gagnheiði 16. janúar 1995 kl. 4. Lesa meira
 
Reykjavikurflugvöllur í ágúst 1975

Mesta vindhviða í Reykjavík - Flosi Hrafn Sigurðsson 12.3.2008

Suðaustan fárviðri gekk yfir suðvestanvert Ísland fimmtudaginn 15. janúar 1942. Þá mældist mesta vindhviða í Reykjavík 59,5 m/s.

Lesa meira
 
Af forsíðu Þjóðólfs 28.2. 1866

Þorraþrællinn 1866 - Trausti Jónsson 12.2.2008

Þorraþrælinn 1866 bar upp á 17. febrúar. Þorraþræll er síðasti dagur þorra samkvæmt íslenska tímatalinu og er ætíð laugardagur. Hvernig var veðrið á þorraþælinn 1866? Lesa meira
 
Í Borgarfirði í janúar 1975

Illviðrin í vetur - Trausti Jónsson 11.2.2008

Illviðrasamt hefur verið í vetur. Óhætt að fullyrða að illviðri síðustu 3 mánaða hafa verið óvenju tíð og stríð sé miðað við síðustu 12 árin að minnsta kosti.

Lesa meira
 
Vetrarstillur á miðhálendinu

Vindkæling - Trausti Jónsson 6.2.2008

Tölur sem lesnar eru af mæli segja varla hálfa sögu um það hversu mikið varmatap er hjá fólki úti við. En ekki er allt sem sýnist þegar litið er í kælitöflur. Lesa meira
 
Glitský 20. desember 2004.

Árstíðasveifla glitskýja yfir Íslandi 1964-2002 - Trausti Jónsson 6.2.2008

Glitský eru langalgengust í desember og janúar, þau eru einnig algeng í febrúar, en þau hverfa af sviðinu þegar líður á marsmánuð.

Lesa meira
 
Glitský 20. janúar 2008

Glitský á 17. öld - Trausti Jónsson 28.1.2008

Glitskýja er stundum getið í eldri heimildum, þar af alloft á 19.öld. Dæmið hér að neðan er hugsanlega elsta athugun á glitskýjum í heiminum.

Lesa meira
 
varla sést til húss í gegnum snjófjúk og byl

Tíðni hríðarveðra - Trausti Jónsson 28.1.2008

Mikil áraskipti eru í tíðni hríðarveðra á landinu og mikill breytileiki eftir landshlutum. Hríðarveður voru sérlega mörg á hafísárunum og um 1980.

Lesa meira
 
Hafís á Bitrufirði 1968

Hugleiðingar um bakgrunn kuldanna 1918 - Trausti Jónsson 22.1.2008

Í janúar 1918 gerði eitt mesta kuldakast sem vitað er um frá því að samfelldar veðurmælingar hófust hér á landi fyrir um 200 árum.

Lesa meira
 
Esja, sléttur sjór

Sjólag og mat á því - Trausti Jónsson 17.1.2008

Sjólag í veðurskeytum táknar mat veðurathugunarmanns á ölduhæð á sjó nærri athugunarstað. Lesa meira
 
skip við bryggju, fólk á hafnarbakka sem er þakinn snjó

Lágmarkshiti í Reykjavík - Trausti Jónsson 16.1.2008

Hinn 21. janúar 1918 mældist 24,5 stiga frost í Reykjavík. Þetta er mesta frost sem þar hefur mælst.

Lesa meira
 
Teikning af fjöllum

Veður á Heklu sumarið 1930 - Veðurstofa Íslands 16.1.2008

Sumarið 1930, 19. júlí til 12. ágúst, dvaldi Guðmundur Kjartansson jarðfræðingur við rannsóknir á Heklu og í nágrenni hennar. Lesa meira
 
snæviþakið umhverfi, bleik birta

Árið 2007 - Trausti Jónsson 3.1.2008

Árið var mjög hlýtt, það tíunda hlýjasta frá upphafi mælinga í Reykjavík, í Stykkishólmi og í Vestmannaeyjum. Lesa meira
 
slóði í snjó hátt uppi í fjalli, haf og borg í bakgrunni

Snjóhula í Reykjavík á jóladag - Trausti Jónsson 17.12.2007

Veðurkort sem sýna veðrið kl. 12 á hádegi frá árinu 1949 og tafla þar sem hægt er að sjá snjóhulu í Reykjavík frá árinu 1921.

Lesa meira
 
Netjuský

Netjuský - Trausti Jónsson 26.11.2007

Altocumulus perlucidus, netjuský með götum. Hitahvörf marka yfirleitt efra borð skýja af þessu tagi. Lesa meira
 
skýjuð Esja, dimmur sjór

Tættir bólstrar á Esju - Trausti Jónsson 23.11.2007

Mynd sýnir ský á Esju, annaðhvort cumulus fractus (tættir bólstrar) eða stratocumulus fractus (tætt flákaský). Uppstreymi er við norðurhlíðar fjallsins, en mikil aflkvika tætir skýin og gerir þau óregluleg. Lesa meira
 
Ský

Skúraský - Trausti Jónsson 21.11.2007

Skúraský (éljaský) myndast í óstöðgu lofti, gjarnan að degi til á sumrin, þegar sól hitar yfirborð landsins. Loft er að jafnaði óstöðugt þegar kalt er í háloftunum. Lesa meira
 
maður klífur mastur, lágreist hús, malarvegur

Nöfn vindstiga og greining veðurhæðar - Trausti Jónsson 21.11.2007

Vinds er nú að jafnaði getið í hraðaeiningunni metrar á sekúndu (m/s). Áður var notast við mat samkvæmt Beaufort-kvarða. Lesa meira
 
tunglbogi, skissa, skýringarmynd

Tunglbogi - Trausti Jónsson 9.11.2007

Regnbogar sjást alloft í tunglskini og rigningu. Þeirra er helst að vænta í hvössu veðri þar sem vindur ber regn inn undir glugga sem myndast í skýjaþykkni hlémegin fjalla. Veðurstofuna vantar enn góða mynd af fyrirbrigðinu. Lesa meira
 
dimmar hlíðar, skrýtin ský

Júgurský - Trausti Jónsson 9.11.2007

Júgurský eða skýjasepar myndast einkum þar sem rakamettað loft í ákaflegu uppstreymi nær að streyma til hliðar og lendir þar undir stöðugra loftlagi, en jafnframt ofan á þurrara lofti. Lesa meira
 
Kort: strönd undan Mýrdalsjökli, Vestmannaeyjar

Fylgst með sköflum í Eyjafjöllum - Trausti Jónsson 23.10.2007

Óskar Sigurðsson veðurathugunarmaður á Stórhöfða hefur allt frá 1953 fylgst með þvi hversu lengi skaflar vestast í Eyjafjöllum lifa fram eftir sumri. Lesa meira
 
mælitæki á vegg innanhúss

Mælingar á loftþrýstingi - Trausti Jónsson 23.10.2007

Hlutfallslegar breytingar á loftþrýstingi koma fram með frumstæðustu tækjum, t.d. loftfylltum þvagblöðrum dýra. Mun meira mál er að mæla hver þrýstingurinn nákvæmlega er í einhverri viðtekinni einingu t.d. hPa (hektóPaskölum) eða mb (millibörum). Lesa meira
 
svarthvít mynd, gamaldags bíll á hrjúfum malarvegi

Bílar og lofthitamælingar - Trausti Jónsson 18.10.2007

Bílar eru ekki kjörstaðir til lofthitamælinga, en engu að síður má hafa bæði gagn og gaman af hitamælingum í akstri. Lesa meira
 

Hitakvarðar - Trausti Jónsson 18.10.2007

Hiti er mældur með ýmsum kvörðum. Þrír eru þó algengastir, selsíus (°C), fahrenheit (°F) og kelvin (táknaður með K, sá síðastnefndi er án gráðumerkis). Lesa meira
 

Efnasamsetning lofthjúpsins - Trausti Jónsson 16.10.2007

Lofthjúpurinn er blanda margra lofttegunda, tvær eru langalgengastar, nitur (N) og súrefni (O). Lesa meira
 
Hitamælaskýli í Reykjavík

Hæsti hiti í Reykjavík - Trausti Jónsson 9.10.2007

Hæsti hiti sem mælst hefur við staðalaðstæður í Reykjavík er 24,8°C, 11. ágúst 2004. Þá mældust 25,7°C á sjálfvirkan mæli í Veðurstofureit. Lesa meira
 
háir snjóruðningar sitt hvoru megin vegar

Mesta snjódýpt á Íslandi - Trausti Jónsson 4.10.2007

Mesta snjódýpt sem mælst hefur á Íslandi er 279 cm við Skeiðsfossvirkjun 19. mars 1995. Annars er ekki auðhlaupið að því að mæla þykkt snævar á Íslandi. Hér er því lýst hvað snjódýptarmælingar eru misjafnar eftir aðstæðum og einnig fjallað um mestu snjódýpt í Reykjavík. Neðst í greininni eru gefin snjódýptarmet hvers mánaðar þar, frá því í september fram í maí.

Lesa meira
 
þvottur blaktir í vindi, grónar flatir, haf og klettar

Lægsti loftþrýstingur á Íslandi - Trausti Jónsson 4.10.2007

Lægsti loftþrýstingur sem vitað er um hér á landi mældist á Stórhöfða í Vestmannaeyjum að morgni 2. desember árið 1929. Lesa meira
 

Loftvogarleiðréttingar - Trausti Jónsson 4.10.2007

Tölur sem lesnar eru af loftvogum þarf alltaf að leiðrétta áður en þær eru nothæfar í bæði rúm- og tímalegu samhengi. Hér er fjallað lauslega um helstu leiðréttingarnar. Lesa meira
 

Hæsti loftþrýstingur á Íslandi - Trausti Jónsson 4.10.2007

Hæsti loftþrýstingur: Reykjavík 4. janúar 1841, 1058,0 hPa. Lesa meira
 
línurit

Úrkomumet við Ölkelduháls 2007 - Trausti Jónsson 28.9.2007

Óvenjumikil úrkoma var á landinu vestan- og sunnanverðu 26. til 27. september 2007.

Lesa meira
 
Hvítur steinbær með rauðu þaki undir hlíð, gróin tún

Mesta úrkoma á Íslandi - Trausti Jónsson 28.9.2007

Mesta sólarhringsúrkoma sem mælst hefur á Íslandi kom úr mælinum á Kvískerjum í Öræfum að morgni 10. janúar 2002. Lesa meira
 
þrír hitamælar standa upp úr vel hirtri grasflöt

Jarðvegshitamælingar - Trausti Jónsson 27.9.2007

Jarðvegshitamælingar gefa upplýsingar um varmaeiginleika jarðvegs og orkuskipti hans við yfirborð og dýpri jarðlög.

Lesa meira
 

Brandsstaðaannáll - Trausti Jónsson 27.9.2007

Björn Bjarnason, bóndi á Brandsstöðum í Húnavatnssýslu, tók saman mjög merkan annál sem kenndur er við bæinn. Björn bjó á Brandsstöðum frá 1816 til 1821 og aftur eftir 1836, en þess á milli á Guðrúnarstöðum í Vatnsdal.

Lesa meira
 

Brot úr 19. aldar tímariti - Veðurstofa Íslands 25.9.2007

Textinn hér að neðan birtist fyrst sem hluti af greininni Um jarðirkju á Íslandi, í Nýjum félagsritum, IX, s. 114-116 og er sennilega eftir Jón Sigurðsson forseta. Lesa meira
 
gömul bæjarhús til hægri, nýtt hús framundan

Lægsti hiti á Íslandi - Grímsstaðir og Möðrudalur 21. janúar 1918 - Trausti Jónsson 25.9.2007

Janúar 1918 er kaldasti mánuður á Íslandi á 20. öld og ekki hefur enn orðið jafnkalt það sem af er þeirri 21.

Lesa meira
 
svarthvít mynd, lítill hópur fólks fyrir utan steinhús, gömul bifreið

Grímsstaðir á Fjöllum - Trausti Jónsson 24.9.2007

Grímsstaðir á Fjöllum eiga, ásamt Möðrudal, opinbert landslágmark í hita, á báðum stöðvum mældist -38 stiga frost þann 21. janúar 1918.

Lesa meira
 
hús í grónum hvilftum, kirkja uppi á hæð

Vík í Mýrdal - Trausti Jónsson 21.9.2007

Veðurathuganir hafa verið gerðar í Vík í Mýrdal nokkurn veginn samfellt frá 1925. Vík er, ásamt Vestmannaeyjakaupstað, hlýjasta veðurstöð landsins árið í heild, ... Lesa meira
 
sól með björtum hring utan um

Rosabaugar - Kristín Hermannsdóttir 21.9.2007

Rosabaugur myndast þegar sólin skín í gegnum þunna skýjabreiðu (oftast bliku) sem er hátt á himni. Ljósið frá sólinni brotnar í kristöllunum og það myndast eins konar regnbogi kringum sólina. Lesa meira
 

Veðurstikar - veðurkort - Trausti Jónsson 31.8.2007

Í daglegu máli er orðið "veður" notað sem safnheiti yfir hita, vind, ský, úrkomu o.s.frv. Öll þessi atriði eru oftast kölluð veðurþættir eða veðurstikar. Lesa meira
 

Eðlismassi lofts - Trausti Jónsson 31.8.2007

Eðlismassi lofts við staðalaðstæður. Þurrt loft, rakt loft. Loftböggull. Lesa meira
 

Næturfrost - dæmi - Trausti Jónsson 28.8.2007

Dægursveifla í Þykkvabæ aðfaranótt 18. ágúst 2007 var um 16°C. Allmörg dæmi eru þó um dægursveiflu vel yfir 20°C hér á landi í björtu veðri og hægum vindi. Raki í lofti dró úr dægursveiflunni í Þykkvabæ. Lesa meira
 
mastur ber við himin, kvöldbirta

Næturfrost - Trausti Jónsson 28.8.2007

Næturhiti verður lægstur þegar heiðskírt er, þá er nettóútgeislun varma frá yfirborði jarðar út í geiminn mest.

Lesa meira
 
Skýstrókur á Skeiðarársandi - 1. mynd

Sveipir á Skeiðarársandi - Trausti Jónsson 13.8.2007

Föstudaginn 27. júlí 2007 sáust sveipir á Skeiðarársandi sem minntu á þá illræmdu skýstrokka sem oft er getið í fréttum og valda ótrúlegu tjóni þar sem þeir fara um.

Lesa meira
 

Leiðbeiningar um notkun spáritasíðunnar - Helgi Borg 27.7.2007

Veðurspárit birta á grafískan hátt samantekt á sjálfvirkum staðaspám fyrir ákveðna staði. Lesa meira
 
silfurblár næturhiminn

Silfurský - lýsandi ský á næturhimni - Trausti Jónsson 12.7.2007

Við lok júlímánaðar og fyrri hluta ágúst má alloft um miðnæturbil sjá bláhvítar, örþunnar skýjaslæður á himni. Lesa meira
 
Teigarhorn í Berufirði.

Hæsti hiti á Íslandi - Teigarhorn 22. júní 1939 - Trausti Jónsson 11.7.2007

Hiti hefur aðeins sex sinnum verið bókaður 30°C eða hærri á Íslandi. Að auki hefur nokkrum sinnum frést af meira en 29°C stiga hita. Lesa meira
 

Hitamet á íslenskum veðurstöðvum 1873-1923 - Trausti Jónsson 11.7.2007

Danska veðurstofan hóf mælingar hér á landi 1873 og þá var farið að mæla hita í mæliskýlum, en þau höfðu óvíða verið notuð fram að þeim tíma. Hér má skoða töflu yfir hæsta hámarkshita sem mældist á einstökum stöðvum á tímabilinu 1873 til 1923. Lesa meira
 

Hitamet á íslenskum veðurstöðvum 1924-2007 - Trausti Jónsson 10.7.2007

Hér má skoða töflu er sýnir hæsta hita sem mælst hefur á íslenskum veðurstöðvum frá því í janúar 1924 og fram á sumar 2007, bæði mönnuðum stöðvum og sjálfvirkum. Listinn nær yfir þann tíma sem hámörkin eru aðgengileg í stafrænum gagnagrunni Veðurstofunnar. Óhjákvæmilegt er að listi sem þessi verði í sífelldri endurskoðun, breytingar á metum mönnuðu stöðvanna eru þó venjulega ekki miklar frá ári til árs.

Lesa meira
 
uppi á lágum fjallshrygg, hvassar klappir efst

Veður á frídegi verslunarmanna - Trausti Jónsson 5.7.2007

Leita má að veðri um verslunarmannahelgi á vef Veðurstofunnar aftur til 1949.

Lesa meira
 

Varmaflutningur - Trausti Jónsson 4.7.2007

Grundvallarflutningshættir varma (orku) eru þrír: Leiðni, streymi og geislun. Lesa meira
 

Loftvogir - Veðurstofa Íslands 4.7.2007

Kvikasilfursloftvog og síritandi loftvog. Lesa meira
 

Veðurvindáttir - Trausti Jónsson 4.7.2007

Í veðurathugunum er hefð fyrir því að stefna sé gefin upp sem horn af hring. Hringurinn byrjar við norðanátt og hækkar gráðutalan sólarsinnis, þ.e.a.s. með því að farið er um austur, austanátt talin 90°, suður (180°), vestur (270°) og að lokum í norður, en hrein norðanátt er eftir hefð talin stefnan 360° (ekki 0°). Lesa meira
 
skýringarmynd

Hvernig myndast vindur? - Trausti Jónsson 4.7.2007

Vindur er loft á hreyfingu. Misjafn loftþrýstingur er langalgengasta ástæða þess að vindur kviknar, ... Lesa meira
 
við sjónskífu á Esju, sést yfir Kollafjörð

Suðumark á fjöllum - Trausti Jónsson 7.6.2007

Suðumark er er sá hiti þar sem mettunarþrýstingur verður jafn loftþrýstingnum. Þar sem þrýstingur er minni, t.d. uppi á fjöllum, er suðumarkið lægra. Lesa meira
 
Hitamælar í mælaskýli.

Skilgreining rakahugtaka - Trausti Jónsson 7.6.2007

Votur hiti er lægsti hiti sem hægt er að kæla loft að með því einu að sjá því fyrir nægu vatni til uppgufunar, við óbreyttan þrýsting.

Lesa meira
 

Raki innandyra - Trausti Jónsson 7.6.2007

Rakastig er mælikvarði á hversu greiðlega gengur að láta vatn gufa upp ... Lesa meira
 

Mettunarrakaþrýstingur - uppgufun - Trausti Jónsson 6.6.2007

Minna gufar upp við ísyfirborð en vatnsyfirborð. Lesa meira
 

Dulvarmi - Trausti Jónsson 4.6.2007

Þegar ís bráðnar og verður að fljótandi vatni tekur hann upp varma frá umhverfinu. Lesa meira
 

Fasar og fasahvörf - Trausti Jónsson 4.6.2007

Vatn er í gufuhvolfinu í þremur fösum, sem fast efni, vökvi og lofttegund, auk þess er vatn í heimshöfunum, ám og stöðuvötnum, jöklum, hafís og neðanjarðar. Lesa meira
 

Eimþrýstingur - Trausti Jónsson 1.6.2007

Lofthjúpurinn er hvergi alveg laus við vatn, en mjög mismikið er af því frá einum stað til annars. Mest er þó af því þar sem loft er að jafnaði hlýjast. Lesa meira
 

Mælingar með 'votum' hitamæli - Trausti Jónsson 30.5.2007

Upplýsingar um raka í lofti má setja fram á nokkra (mikið til) jafngilda vegu auk þess sem hann má mæla á mismunandi hátt. Rakaþrýstingur er reiknaður út á grundvelli annarra rakamælinga.

Lesa meira
 

Dulvarmi í daglegu lífi - Trausti Jónsson 30.5.2007

Fjölmörg dæmi mætti nefna um dulvarma í daglegu lífi. Hann er líkamanum nauðsynlegur til kælingar, bæði í formi svita og ekki síður við öndun. Lesa meira
 

Fahrenheit og selsíus - vedur.is 29.5.2007

Hiti er mældur í selsíusgráðum á Íslandi og víðast hvar annars staðar í heiminum. Lesa meira
 

Orðskýringar - Trausti Jónsson 22.5.2007

 

Leiðbeiningar með veðursjá (RADAR) - Halldór Björnsson 18.5.2007

Veðurstofa Íslands á eina veðurratsjá sem er staðsett á Miðnesheiði skammt frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Lesa meira
 
Sól í skýjum og ljósblettur utar

Baugar og hjásólir - Trausti Jónsson 24.4.2007

Gíll eða aukasól er ljósblettur sem fer á undan (sést vestan við) sól og myndast við ljósbrot sólargeislanna. Samsvarandi ljósblettur sem fer á eftir sól (austan við hana) heitir úlfur. Sagt er að sól sé í úlfakreppu. Lesa meira
 

Leiðbeiningar með Atlantshafsspám - Veðurstofa Íslands 27.3.2007

Spákort fyrir Atlantshaf eru sjálfvirkar veðurspár sem eru búnar til með tölvulíkani.

Lesa meira
 

Leiðbeiningar með veðurþáttaspám - Veðurstofa Íslands 27.3.2007

Veðurþáttaspár eru sjálfvirkar veðurspár sem eru búnar til með tölvulíkani. Lesa meira
 

Leiðbeiningar með textaspám - Veðurstofa Íslands 27.3.2007

Veðurstofunni berast á hverjum degi niðurstöður úr mörgum spálíkönum. Veðurfræðingur yfirfer niðurstöðurnar og byggir textaspárnar á niðurstöðum sem líklegastar eru til að ganga eftir á hverjum tíma. Lesa meira
 

Leiðbeiningar með skýjahuluspám - Sigrún Karlsdóttir 26.3.2007

Skýjahuluathuganir eru gerðar á 3 klst. fresti á nokkrum stöðum á landinu. Nýjasta athugunin sést á kortinu. Lesa meira
 

Sólstólpi - Trausti Jónsson 26.3.2007

Sólstólpi verður til þegar sólarljós speglast á efra eða neðra borði ískristalla. Stöplar myndast oftast við speglun á flötum ískristöllum (plötum/flögum). Langoftast eru kristallarnir í háum blikuskýjum ... Lesa meira
 

Veðurtákn og skýringar - Elín Björk Jónasdóttir 2.2.2007

 

Hitamet í ágúst 2004 - Trausti Jónsson 16.1.2007

Listi yfir mesta hita sem mældist á íslenskum veðurstöðvum fyrstu sjö mánuði ársins 2004 og til og með 15. ágúst. Lesa meira
 

Leiðbeiningar um notkun staðaspáa - Helgi Borg 13.1.2007

Staðaspár eru sjálfvirkar veðurspár fyrir ákveðna staði. Nýjar staðaspár eru reiknaðar út nokkrum sinnum á sólarhring.

Lesa meira
 
Skipting gulfuhvolfs jarðar, skýringarmynd

Gufuhvolf jarðar - Sigrún Karlsdóttir 8.1.2007

Gufuhvolfi jarðar er skipt í mismunandi hvolf: veðrahvolf (troposphere), heiðhvolf (stratosphere), miðhvolf (mesosphere) og hitahvolf (thermosphere). Lesa meira
 
fjögur heimskort

Veðurfræði og veðurkort: söguágrip - Trausti Jónsson 21.12.2006

Sú hugmynd að setja upplýsingar fram á kortaformi verður að teljast meðal meginuppgötvana mannkyns. Ekki hefur síður verið erfitt að láta sér detta í hug, fyrstur manna, að merkja aðra þætti en hina beinu landfræðilegu á kort. Lesa meira
 
Ský

Veðurfarskerfi jarðar - Þór Jakobsson 20.12.2006

Veðurfar er skilgreint sem meðalástand veðurs. Meginhlutar veðurfarskerfisins eru fimm talsins: lofthjúpur, vatnshjúpur, jöklar og ís, yfirborðslag jarðar og lífríkið.

Lesa meira
 

Um veðurathuganir - Hreinn Hjartarson 8.12.2006

Veðurathuganir eru gerðar í þeim tilgangi að afla upplýsinga um ástand lofthjúpsins. Veðurathuganir eru alþjóðlegar og skiptast lönd á upplýsingum oft á sólarhring. Lesa meira
 

Sólskinsmælingar - Trausti Jónsson 7.12.2006

Sólskinsmælingar hófust hér á landi síðustu dagana í janúar 1911 þegar mælir var settur upp á Vífilsstöðum, skammt fyrir utan Reykjavík. Lesa meira
 

Sprengilægð verður til - Trausti Jónsson 30.11.2006

Með bombulægð er átt við lægð sem dýpkar um að minnsta kosti 48 mb. (millibör) á einum sólarhring, en það gerði til dæmis lægðin sem nálgaðist landið morguninn 9. nóvember 2006.

Lesa meira
 

Áhrif sjávarhita: hlýjast í Grímsey - Einar Sveinbjörnsson 30.11.2006

Hinn 24. október 2006 kl. 12 á hádegi var frost um nær allt Ísland. Aðeins á einum mælistað var hitinn hærri en frostmarkið, en það var í Grímsey á Skjálfandaflóa. Lesa meira
 

Hlýr september 2006 - Einar Sveinbjörnsson 29.11.2006

Septembermánuður 2006 var 3,1°C yfir meðallagi í Reykjavík og meðalhitinn var 10,6°C sem er ekki langt frá júlíhitanum eins og hann var á árunum 1961-1990.

Lesa meira
 
Vindhraði í Öræfum 16. nóv. 2006.

Byljótt undir fjöllum - Einar Sveinbjörnsson 29.11.2006

Morguninn 16. nóv. 2006 mældist hviða upp á 50 m/s á hringveginum við Lómagnúp. Vegagerðin er þarna með mæli og sjá mátti að kl. 09 var meðalvindur á þessum stað 29 m/s.

Lesa meira
 
sólarupprás, girðingarstaura ber við glóandi himin

Sumardagurinn fyrsti 1949-2005 - Trausti Jónsson 8.11.2006

Sumardagurinn fyrsti er í almanakinu talinn annar fimmtudagur eftir Leonisdag sem er 11. apríl hvert ár, eða með öðrum orðum fyrsti fimmtudagur eftir þann 18.

Lesa meira
 
Núpsstaður

Brúðkaupsveður - Einar Sveinbjörnsson 8.11.2006

Kirkjubrúðkaup eru algengust á sumrin í mánuðunum júní til ágúst og flestar athafnir eru um og eftir miðjan daginn. Lesa meira
 
Vindskafin ský

Vindskafin ský - Einar Sveinbjörnsson 1.11.2006

Stundum gefur að líta á himninum ský sem líkjast fljúgandi diskum. Þetta eru svokölluð vindskafin netjuský, eða altocumulus lenticularis, eins og þau heita á latínu.

Lesa meira
 
bleik ský á himni, bylgjótt

Hvað eru glitský? - Halldór Björnsson 16.8.2006

Glitský eru ákaflega fögur ský sem myndast í heiðhvolfinu í um 15-30 km hæð. Glitský sjást helst um miðjan vetur, um sólarlag eða sólaruppkomu.

Lesa meira
 

Ský - Sigrún Karlsdóttir 11.8.2006

Vatn er alls staðar í andrúmsloftinu í kringum okkur en í mismiklu magni. Oftast er það í formi ósýnilegrar gufu en stundum sem ský. Í þessari grein má skoða ljósmyndir af skýjum úr öllum skýjaflokkum ásamt skýringum. Lesa meira
 

Rakastig loftsins - Sigrún Karlsdóttir 11.8.2006

Rakastig segir til um hve nærri loftið er því að vera mettað af raka, talið í prósentum. Rakastig mettaðs lofts í þoku er 100% en 0% ef enga vatnsgufu er að finna í loftinu. Hæfni loftsins til að geyma raka er mjög háð hita. Lesa meira
 

Vindhraði - Baldur Ragnarsson 10.8.2006

Hér má umreikna vindhraða, sjá vindhraðaflokkun og samanburð við vindstigatöflu Beaufort. Lesa meira
 

Spá um öskufall - Veðurstofa Íslands

Hér er að finna nýjustu öskufallsspár vegna gossins í Eyjafjallajökli sem hófst 14. apríl 2010. Lesa meira
 




Aðrir tengdir vefir


Þetta vefsvæði byggir á Eplica