Staðaspár -

Sýna flokk veðurstöðva

Finna spá fyrir veðurstöð

Stöðvalisti
 

Textaspá fyrir allt landið

Veðurhorfur á landinu

Sunnan og suðvestan 5-13 m/s og dálitlar skúrir, en víða léttskýjað á Norður- og Austurlandi. Austlægari vindur og fer að rigna syðst annað kvöld. Hiti 2 til 9 stig.
Spá gerð: 03.11.2026 20:56. Gildir til: 05.11.2026 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á fimmtudag:
Sunnan 5-13 m/s, hvassast vestanlands. Víða rigning, en bjartviðri um landið norðaustanvert. Hiti 5 til 11 stig.

Á föstudag:
Suðvestlæg eða breytileg átt 5-13 m/s og dálítil rigning eða súld, en skýjað með köflum og úrkomulítið norðan- og austanlands. Hiti 3 til 10 stig, mildast suðaustanlands.

Á laugardag:
Suðvestlæg átt og rigning, en að mestu þurrt norðaustantil. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag:
Suðvestanátt með skúrum eða éljum, en að mestu bjart eystra og kólnandi veður.

Á mánudag:
Útlit fyrir breytileg átt með éljum, en bjartviðri sunnan heiða. Svalt í veðri.

Á þriðjudag:
Líklega norðlæg átt með slyddu eða snjókomu, en bjart með köflum á vestanverðu landinu.
Spá gerð: 03.11.2026 19:39. Gildir til: 10.11.2026 12:00.

Hugleiðingar veðurfræðings

Skil fara yfir austanvert landið í kvöld, með sunnanstrekkingi og rigningu eða súld suðaustanlands í fyrstu, en annars suðvestankalda og skúrum á víð og dreif. Kólnar heldur í veðri og á morgun ríkir sunnangola eða -kaldi með smá skúrum á víð og dreif, en léttskýjuðu á Norður- og Austurlandi. Lægðardrag nálgast landið seinnipartinn á morgun og fer að rigna syðra er líður á kvöldið. Fremur svalt í veðri og nær hiti aðeins 10 stigum, þegar best lætur, en sums staðar nærri frostmarki inn til landsins.

Á fimmtudag er spáð suðvestan stinningsgolu með rigningu víða á landinu, en yfirleitt bjartviðri eystra og heldur hlýnandi veðri.
Spá gerð: 03.11.2026 15:46. Gildir til: 05.11.2026 00:00.


Fróðleiksgreinar

Spáforsíða

Stutt lýsing á kortum og staðarspám á spáforsíðu.

Lesa meira

Viðvörunarkerfi Veðurstofunnar

Viðvörunarkerfi Veðurstofunnar byggist á alþjóðlegum staðli sem kallast CAP (Common Alerting Protocol) og er stafrænt snið fyrir miðlun neyðartilkynninga og viðvarana um náttúruvá. Útgefin skeyti eru á stöðluðu formi sem samræmir alla miðlun viðvarana yfir mismundandi samskiptaleiðir og miðla. Hvert CAP skeyti inniheldur upplýsingar um þá náttúruvá sem varað er við, landshlutann sem viðvörunin nær til, gildistíma og mat á því hversu mikil áhrif umrædd vá getur haft á samfélagið.

Lesa meira

Jólasnjór í Reykjavík

Á 95 ára tímabili frá 1921 til 2015 voru 43 jóladagar hvítir í Reykjavík. Hér má finna lista um snjódýpt og snjóhulu á jóladagsmorgunn í Reykjavík. Örfá ár vantar inn í listann.

Lesa meira

Tíðavísur úr Flatey

Karl Guðbrandsson símstöðvarstjóri í Flatey var veðurathugunarmaður þar á árunum 1966 til 1971. Fyrir kom að hann sendi kviðlinga með veðurskýrslunum og þar á meðal tíðavísurnar hér að neðan.

Lesa meira






Aðrir tengdir vefir



Þetta vefsvæði byggir á Eplica